Translations:Saint Germain/78/is
Með reglulegri notkun getur fjólublái loginn áorkað uppbyggilegum breytingum í lífi okkar – og umbreytt uppsafnaðri karmaskuld mannkynsins áður en þær hrellingar dynja yfir sem spáð hefur verið fyrir um á okkar tímum. Fjólublái loginn er sjöunda geislaþáttur heilags anda. Hann er hinn helgi eldur sem umbreytir orsök, afleiðingu, skráningu og minningu um synd, það er að segja slæmu karma. Hann er einnig kallaður logi umbreytingar, frelsis og fyrirgefningar.