Seraphim/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
No edit summary
Tags: Mobile edit Mobile web edit
 
(4 intermediate revisions by the same user not shown)
Line 4: Line 4:
[Hebreska; seraph, et, seraphim, ft] Þekkjast einnig sem serafasveitir. Englaregla sem helgar sér af hafa loga hreinleikans í brennidepli og gera hreint fyrir hásæti Guðs í rafrænum eldhringjum í kringum [[Special:MyLanguage/Great Central Sun|Meginsólina miklu]] og um allan [[Special:MyLanguage/cosmos|algeim]] á sviðum [[Special:MyLanguage/Matter|efnis]] og [[Special:MyLanguage/Spirit|anda]].  

[[Special:MyLanguage/Justinius|Jústiníus]] er höfðingi serafasveitanna. Undir stjórn hans þjóna þeir fyrir altari Guðs í Meginsólinni miklu og uppstigningarloganum og [[uppstigningarmusterinu]] í Lúxor. [[Serafis Bey]], yfirstjórnandi uppstigningarmustersins og [[chohan-meistari]] fjórða geislans var upphaflega af reglu serafanna.  
[[Special:MyLanguage/Justinius|Jústiníus]] er höfðingi serafasveitanna. Undir stjórn hans þjóna þeir fyrir altari Guðs í Meginsólinni miklu og uppstigningarloganum og [[Special:MyLanguage/Ascension Temple|uppstigningarmusterinu]] í Lúxor. [[Special:MyLanguage/Serapis Bey|Serafis Bey]], yfirstjórnandi uppstigningarmustersins og [[Special:MyLanguage/chohan|chohan-meistari]] fjórða geislans var upphaflega af reglu serafanna.  

<span id="Isaiah’s_vision_of_seraphim"></span>
<span id="Isaiah’s_vision_of_seraphim"></span>
Line 21: Line 21:
== Hlutverk serafanna ==
== Hlutverk serafanna ==

Serafis Bey lýsir sýn sinni á seröfum í ''Dossier on the Ascension (Uppstigningarskjölin)'':  
Serafis Bey lýsir sýn sinni á seröfum í ''Dossier on the Ascension (Uppstigningarskjölunum)'':  

Serafarnir komu og þeir voru eins og logandi eldrákir sem fóru í gegnum andrúmsloftið og ég vissi að þeir bjuggu yfir kosmískri gegndrægni. Eins og geimgeislar gátu þeir farið í gegnum líkamsgerð mannsins, í gegnum hugsanir hans og tilfinningar. Hvaða frásogsáhrif urðu eftir að serafarnir höfðu flogið í gegnum vitund mannsins og gegnsýrt hana?

Line 29: Line 29:
Ég skynjaði að áhrifin vöruðu í vitund margra; og þó, ekki nema þau yrðu endurnærð eða hlytu viðtöku hjá þeim, annars myndu þau dofna í vitund þeirra eftir tiltölulega stuttan tíma því að sundrun þessara áhrifa myndi valda því að það sem eftir tórði af neistum serafanna myndu hverfa aftur til föðurhúsanna og yfirgefa hið ógestrisna skammtímaheimili þeirra. Forsendan fyrir því að viðhalda ávinningnum sem serafarnir veita er að tengja sig við þá.

Ég veit um neinn kraft sem er háleitari til að aðstoða nokkurn mann við að stíga upp í ljósið en hin umbreytandi viðleitni til að öðlast hreinleika alheims-Krists sem serafískar hersveitit geisla frá sér. Í athvarfi okkar í Lúxor eru hugleiðingar um serafana mjög mikilvægur þáttur andlegrar kennslu okkar.
Ég veit ekki um neinn kraft sem er háleitari til að aðstoða nokkurn mann við að stíga upp í ljósið en hin umbreytandi viðleitni til að öðlast hreinleika alheims-Krists sem serafískar hersveitit geisla frá sér. Í athvarfi okkar í Lúxor eru hugleiðingar um serafana mjög mikilvægur þáttur andlegrar kennslu okkar.

Jesús sjálfur varði miklum tíma í samfélagi við serafísku sveitirnar. Þetta þroskaði með honum æðri mátt til að reka út illa anda og ná valdi yfir heimi efnisformsins.
Jesús varði sjálfur miklum tíma í samfélagi við serafísku sveitirnar. Þetta þroskaði með honum æðri mátt til að reka út illa anda og ná valdi yfir ytra heimi formsins.
</blockquote>
</blockquote>

Möntru-þulan sem serafarnir syngja án afláts fyrir hásæti Drottins er: „Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn allsherjar, öll jörðin er full af hans dýrð.“<ref>Jes. 6:3.</ref>
Möntruþulan sem serafarnir syngja án afláts fyrir hásæti Drottins er: „Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn allsherjar, öll jörðin er full af hans dýrð.“<ref>Jes. 6:3.</ref>

<span id="See_also"></span>
<span id="See_also"></span>

Latest revision as of 14:38, 16 November 2024

Other languages:
Varir Jesaja smurðar með eldi, Benjamín West

[Hebreska; seraph, et, seraphim, ft] Þekkjast einnig sem serafasveitir. Englaregla sem helgar sér af hafa loga hreinleikans í brennidepli og gera hreint fyrir hásæti Guðs í rafrænum eldhringjum í kringum Meginsólina miklu og um allan algeim á sviðum efnis og anda.

Jústiníus er höfðingi serafasveitanna. Undir stjórn hans þjóna þeir fyrir altari Guðs í Meginsólinni miklu og uppstigningarloganum og uppstigningarmusterinu í Lúxor. Serafis Bey, yfirstjórnandi uppstigningarmustersins og chohan-meistari fjórða geislans var upphaflega af reglu serafanna.

Sýn Jesaja á seröfum

Jesaja sá „serafa“ [hebreska, „brennarar“, „brennandi“] standa fyrir ofan hásæti Drottins, hver og einn með sex vængi:

Serafar stóðu fyrir ofan hann. Hafði hver þeirra sex vængi: með tveimur huldu þeir ásjónu sína (frammi fyrir dýrð Drottins), með tveimur huldu þeir fætur sína (í lotningu frammi fyrir heilagleika Drottins) og með tveimur flugu þeir (hækkuðu sveiflutíðni hans til sviða Meginsólarinnar miklu, lækkuðu hans til sviða efnis og forms).[1]

Serafarnir vígja þjóna Drottins á jörðu og hreinsa og hreinka þá sem útvaldir eru til að vera þjónar hans – prestar, spámenn, boðberar o.s.frv. Jesaja fékk sjálfur serafíska vígslu sem hann lýsir líflega:

Þá flaug einn serafanna til mín. Hann hélt á glóandi koli sem hann hafði tekið af altarinu með töng. Hann snerti munn minn með kolinu og sagði: „Þetta hefur snortið varir þínar, sekt þín er frá þér tekin og friðþægt er fyrir synd þína."[2]

Hlutverk serafanna

Serafis Bey lýsir sýn sinni á seröfum í Dossier on the Ascension (Uppstigningarskjölunum):

Serafarnir komu og þeir voru eins og logandi eldrákir sem fóru í gegnum andrúmsloftið og ég vissi að þeir bjuggu yfir kosmískri gegndrægni. Eins og geimgeislar gátu þeir farið í gegnum líkamsgerð mannsins, í gegnum hugsanir hans og tilfinningar. Hvaða frásogsáhrif urðu eftir að serafarnir höfðu flogið í gegnum vitund mannsins og gegnsýrt hana?

Ég sá greinilega að frásogi var náð sem skildi eftir varanleg áhrif — frásog vegna tafarlausrar umbreytingar á öllu efni sem varð á vegi þeirra. Ég tók líka eftir því að áhrifin skildu eftir sig mikla hollustu við hinn hvíta eld, þrungna þrá eftir hreinleika.

Ég skynjaði að áhrifin vöruðu í vitund margra; og þó, ekki nema þau yrðu endurnærð eða hlytu viðtöku hjá þeim, annars myndu þau dofna í vitund þeirra eftir tiltölulega stuttan tíma því að sundrun þessara áhrifa myndi valda því að það sem eftir tórði af neistum serafanna myndu hverfa aftur til föðurhúsanna og yfirgefa hið ógestrisna skammtímaheimili þeirra. Forsendan fyrir því að viðhalda ávinningnum sem serafarnir veita er að tengja sig við þá.

Ég veit ekki um neinn kraft sem er háleitari til að aðstoða nokkurn mann við að stíga upp í ljósið en hin umbreytandi viðleitni til að öðlast hreinleika alheims-Krists sem serafískar hersveitit geisla frá sér. Í athvarfi okkar í Lúxor eru hugleiðingar um serafana mjög mikilvægur þáttur andlegrar kennslu okkar.

Jesús varði sjálfur miklum tíma í samfélagi við serafísku sveitirnar. Þetta þroskaði með honum æðri mátt til að reka út illa anda og ná valdi yfir ytra heimi formsins.

Möntruþulan sem serafarnir syngja án afláts fyrir hásæti Drottins er: „Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn allsherjar, öll jörðin er full af hans dýrð.“[3]

Sjá einnig

Hið þögla vitni

Jústiníus, Höfðingi serafasveitanna

Til frekari upplýsinga

Serapis Bey, Dossier on the Ascension, bls. 115–40.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

  1. Isa. 6:2.
  2. Jes. 6:6–7.
  3. Jes. 6:3.