Elohim/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
No edit summary
Line 25: Line 25:
== Elóhím hinna sjö geisla ==
== Elóhím hinna sjö geisla ==


Eftirfarandi eru nöfn Elóhímanna sjö, geislarnir sem þeir þjóna á og staðsetningar [[ljósvakaathvarfs]] þeirra:  
Eftirfarandi upptalning er nöfn elóhímanna sjö, geislanna sem þeir þjóna á og staðsetningar [[ljósvakaathvarfa]] þeirra:  


{| class="wikitable"
{| class="wikitable"

Revision as of 10:33, 3 August 2024

[Fleirtölu af hebresku Eloah, „Guð“] Eitt af hebreskum nöfnum Guðs eða guðanna; notað í Gamla testamentinu um 2.500 sinnum, sem þýðir „Máttugur“ eða „sterkur“.

Í Biblíunni

Elóhím er tvítölu nafnorð sem vísar til tvíburaloga guðdómsins sem samanstendur af hinu „guðdómlegu Okkur“. Þegar talað er sérstaklega um annaðhvort karlkyns eða kvenkyns helming er tvítöluforminu haldið vegna þess skilnings að annar helmingur hinnar guðdómlegu heildar inniheldur tvíkynja sjálfið og er það (hið guðdómlega við).

Hinir sjö voldugu elóhímar og kvenlegar samfellur þeirra eru formsmiðirnir; þess vegna er elóhím nafn Guðs notað í fyrsta versi Biblíunnar, „Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. Þjónandi beint undir elóhímum eru höfuðskepnurnar fjórar, „hin fjögur kosmísku náttúruöfl,“ sem hafa yfirráð yfir náttúruverum – dvergum (dwarfs), eldöndum (salamanders), loftöndum (sylphs) og vatnadísum (undines).

Hinir sjö voldugu Elohim eru „sjö andar Guðs“ sem nefndir eru í Opinberunarbókinni[1] og „morgunstjörnurnar“ sem sungu saman í upphafi, eins og Drottinn opinberaði þær þjóni sínum Job.[2] Það eru líka fimm elóhímar sem umlykja hvítan eldskjarna Meginsólarinnar miklu.

Skipan í helgivaldinu

Í skipan helgiveldisins bera elóhímar og kosmískar verur mestan styrkleika, hæstu orkutíðni, ljóss sem við getum skilið á þróunarstigi okkar. Þeir tákna, ásamt höfuðskepnunum, náttúruöflunum fjórum, mökum þeirra og byggingameisturum efnisformsins, mátt föður okkar sem skaparans (blái geislinn).

Hinir sjö erkienglar og guðdómlegar samfellur þeirra, hinir miklu serafar, kerúbarnir og allar englasveitirnar tákna kærleika Guðs í brennandi styrkleika heilags anda (rauðguli geislinn).

Hinir sjö chohan-meistarar geislanna og allir uppstignu meistararnir ásamt óuppstignum sonum og dætrum Guðs, tákna visku lögmáls Lógosins undir embætti sonarins (guli geislinn). Þessi þrjú ríki mynda þrígreiningu birtingarmynda sem vinna í jafnvægi við að stiglækka orku þrenningarinnar.

Inntónun hins heilaga hljóðs „elóhím“ leysir frá sér gífurlegan guðlegan kraft Sjálfs-vitundar þeirra sem var stiglækkaður fyrir blessunarlega notkun okkar í gegnum hinn Kosmíska Krist.

Elóhím hinna sjö geisla

Eftirfarandi upptalning er nöfn elóhímanna sjö, geislanna sem þeir þjóna á og staðsetningar ljósvakaathvarfa þeirra:

Geisli Elóhím Ljósvakaathvarf
Fyrsti geisli Herkúles og Amasónía Half Dome, Sierra Nevada, Yosemite þjóðgarðurinn, Kaliforníu, Bandaríkin
Annar geisli Apolló og Lúmína Vestur hluti Neðra-Saxlands, Þýskaland
Þriðji geisli Heros og Amora Winnipeg stöðuvatnið, Kanada
Fjórði geisli Hreinleiki og Astrea Nálægt Erkienglaflóa, suðaustur hluti Hvítahafs, Rússlandi
Fimmti geisli Kyklópea og Virginía Altai-svæðið þar sem Kína, Síbería og Mongólía mætast, nálægt Tabun Bogdo
Sjötti geisli Friður og Alóha Friðarmusteri, Hawaii-eyjar
Sjöundi geislinn Arktúrus oog Viktoria Nálægt Luanda, Angóla, Afríku

Það eru líka fimm pör af Elohim í innri birtingarmynd innan Miðsólarinnar miklu sem birta leyndargeislana fimm. Þó að þeir hafi ekki gefið upp nöfn sín, er hægt að kalla fram vald þeirra og vald með því að ávarpa „Elohim hinna fimm leynigeisla. Hægt er að nota skriðþunga þeirra til að þróa bönd leyndu geislanna í orsakalíkama mannsins og til að segulmagna logandi möguleika hvíta eldskjarna hvers atóms tilverunnar.

Cassiopea er Elohim Miðsólar sem heldur fókus mikillar lýsingar fyrir hönd Guðdómsins.

Til frekari upplýsinga

Tala Elóhíms, Pearls of Wisdom, 1978, 21. hefti.

The Seven Mighty Elohim, “The Chalice of Elohim,” í Pearls of Wisdom, 1989, 32. hefti, nr. 9–15.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats.

Sjá einnig

Þrjú ríki

List of ascended masters, cosmic beings and angels.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats.

  1. Opinb. 1:4; 3:1; 4:5; 5:6.
  2. Job 38:7.