Purity and Astrea's retreat/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
Tags: Mobile edit Mobile web edit
No edit summary
Line 11: Line 11:
Rúmfræðilega hönnuð steinborð og bekkir úr sama hvíta efninu eru á víð og dreif um salinn. Hvíti steinninn er notaður um allt musterið með litblæ [[Special:MyLanguage/the seven rays|geislanna sjö]] til að hafa hreinleika hvíta eldsins og Krists-vitundarinnar í brennidepli sem er birt í gegnum hvern af geislunum sjö.
Rúmfræðilega hönnuð steinborð og bekkir úr sama hvíta efninu eru á víð og dreif um salinn. Hvíti steinninn er notaður um allt musterið með litblæ [[Special:MyLanguage/the seven rays|geislanna sjö]] til að hafa hreinleika hvíta eldsins og Krists-vitundarinnar í brennidepli sem er birt í gegnum hvern af geislunum sjö.


Sex stigatröppur, þrjár sitt hvoru megin við þennan mikla hringlaga sal, leiða að öðrum logarýmum og kennslustofum, þar af ein sem gefur frá sér sterkan, safírbláan ljóma. Við komu niðri í þessu rúmi stöndum við við innganginn og fylgjumst með stórkostlegum loga hreinleikans í kraftmiklum brennidepli. Vinstra megin í miðju lofti er þyrlandi beinir Astrea í bláum logahring með bláu logandi [[sverði]], eldsúluna, í miðjunni. Hraði logans sem myndar hringinn er svo mikill að það virðist sem hann hreyfist ekki neitt; en við sjáum af neistaflugi bláa eldsins sem kastast af honum í gegnum miðsæknu- og miðflóttavirkni þyrlandi eldsins að hann hreyfist sannarlega á miklum hraða og með nægilega einbeittum krafti vilja Guðs til að skera í gegnum hið mesta þykkni misbeittrar orku mannsins sem um getur.
Sex stigatröppur, þrjár sitt hvoru megin við þennan mikla hringlaga sal, leiða að öðrum logarýmum og kennslustofum, þar af ein sem gefur frá sér sterkan, safírbláan ljóma. Við komu niðri í þessu rúmi stöndum við við innganginn og fylgjumst með stórkostlegum loga hreinleikans í kraftmiklum brennidepli. Vinstra megin í miðju lofti er þyrlandi beinir Astreu í bláum logahring með bláu logandi [[sverði]], eldsúluna, í miðjunni. Hraði logans sem myndar hringinn er svo mikill að það virðist sem hann hreyfist ekki neitt; en við sjáum af neistaflugi bláa eldsins sem kastast af honum í gegnum miðsæknu- og miðflóttavirkni þyrlandi eldsins að hann hreyfist sannarlega á miklum hraða og með nægilega einbeittum krafti vilja Guðs til að skera í gegnum hið mesta þykkni misbeittrar orku mannsins sem um getur.


Ef við þyrftum einhvern tíma að sannfærast um að eldur Guðs sem felst í hjarta jarðar væri nægjanlegur til að veita mannkyninu hjálpræði, þá höfum við ríkar sannanir hér fyrir því að Guð í okkur eru nógsamlegur til að mæta hverri kreppu í tilveru okkar.
Ef við þyrftum einhvern tíma að sannfærast um að eldur Guðs sem felst í hjarta jarðar væri nægjanlegur til að veita mannkyninu hjálpræði, þá höfum við ríkar sannanir hér fyrir því að Guð í okkur eru nógsamlegur til að mæta hverri kreppu í tilveru okkar.

Revision as of 13:44, 11 December 2024

Other languages:

Athvarf Hreinlyndis og Astreu er staðsett á ljósvakasviðinu uppi yfir Erkienglaflóa, suðausturarm Hvítahafsins, Rússlandi. Athvarfið er móttöku- og sendistöð (beinir) fyrir orku mænurótarstöðvar plánetunnar. Ljósvakabeinirinn gegnsýrir hið efnislega svið á öðrum nærliggjandi sviðum.

Lýsing

Farið er inn í athvarfið í gegnum stóran hvítan pýramída sem er ofanjarðar. Þrjár spírur rísa í gegnum þennan pýramída og fyrir ofan hann. Miðspíran, sem nær í gegnum endasteininn á pýramídanum, er gulur skúfur. Minni spírurnar á hvorri hlið eru rauðgular og bláar. Farið er inn í þríhyrningslaga rúm og sést yst á endanum þrjár stórar uppsprettur hreinsunarlogans gegn miðnæturbláum veggjum. Í miðju herberginu er aðalstiginn sem leiðir niður í mjög stóra samstæðu sem inniheldur samtengdar kennslustofur, logarými og miðsal.

Um leið og farið er niður stigann sjáum við aðra sjálfbæra lind kosmísks hreinleika. Útgeislun hennar er svo ljómandi að okkur finnst við vera í návist sólarinnar sjálfrar. Þegar við förum um gosbrunninn, göngum við niður annan stiga inn í sal elóhímanna. Yst á röð stígandi hringlaga palla er hásæti Hreinlyndis og Astreu. Hvolfþakið er í tærum miðnæturbláum lit í bland við djúpfjólubláan, en gólfið undir fótum okkar er mjallhvítur steinn. Fjórar súlur mynda ferning innan musterisins og tvær súlur til viðbótar eru í stiganum sem við höfum rétt í þessu farið niður.

Rúmfræðilega hönnuð steinborð og bekkir úr sama hvíta efninu eru á víð og dreif um salinn. Hvíti steinninn er notaður um allt musterið með litblæ geislanna sjö til að hafa hreinleika hvíta eldsins og Krists-vitundarinnar í brennidepli sem er birt í gegnum hvern af geislunum sjö.

Sex stigatröppur, þrjár sitt hvoru megin við þennan mikla hringlaga sal, leiða að öðrum logarýmum og kennslustofum, þar af ein sem gefur frá sér sterkan, safírbláan ljóma. Við komu niðri í þessu rúmi stöndum við við innganginn og fylgjumst með stórkostlegum loga hreinleikans í kraftmiklum brennidepli. Vinstra megin í miðju lofti er þyrlandi beinir Astreu í bláum logahring með bláu logandi sverði, eldsúluna, í miðjunni. Hraði logans sem myndar hringinn er svo mikill að það virðist sem hann hreyfist ekki neitt; en við sjáum af neistaflugi bláa eldsins sem kastast af honum í gegnum miðsæknu- og miðflóttavirkni þyrlandi eldsins að hann hreyfist sannarlega á miklum hraða og með nægilega einbeittum krafti vilja Guðs til að skera í gegnum hið mesta þykkni misbeittrar orku mannsins sem um getur.

Ef við þyrftum einhvern tíma að sannfærast um að eldur Guðs sem felst í hjarta jarðar væri nægjanlegur til að veita mannkyninu hjálpræði, þá höfum við ríkar sannanir hér fyrir því að Guð í okkur eru nógsamlegur til að mæta hverri kreppu í tilveru okkar.

Elóhímarnir hafa útnefnt yfirstjórnendur sem sjá um athvarf þeirra — meistara sem þjóna á bláum og hvítum geislum. Hinar eldhvítu og bláu leifturenglasveitir þeirra hlúa einnig að athvarfinu og þjóna logunum.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, “Purity and Astrea’s Retreat”.