|
|
Line 1: |
Line 1: |
| Í trássi við nýju lögin, fór Tómas yfir Ermasund til að leggja
| | 0 |
| málið fyrir páfann. Staðráðinn í því að hefna þessa, bauð konungur
| |
| honum að afhenda ákveðnar eignir og vegsemdir og hóf
| |
| herferð til að veikja tiltrúna á hann og ofsækja hann. Loðvík
| |
| Frakkakonungur var hliðhollur kirkjunni og samþykkti að taka
| |
| við erkibiskupinum í útlegð. Þrátt fyrir að gangast á hönd hinni
| |
| ströngu Benediktusarmunkagrein Sistersíanareglunnar í Pontigny
| |
| klaustrinu í Frakklandi, fékk Tómas bréf frá biskupum og öðrum
| |
| klerkum Englands þar sem þeir hörmuðu „fjandsamlega
| |
| afstöðu“ hans til konungs og báðu hann að vera sáttfúsari og
| |
| fyrirgefa meira. Becket svaraði: „Í langan tíma hef ég þagað og
| |
| beðið eftir því að Drottinn gæti ef til vill blásið ykkur byr í brjóst
| |
| að endurheimta styrk ykkar; þó það væri ekki nema einn ykkar,
| |
| að minnsta kosti, sem myndi rísa upp og standa sem veggur til
| |
| varnar húsi Ísraels, myndi í það minnsta láta líta út fyrir að taka
| |
| þátt í baráttunni gegn þeim sem látlaust sækja dag hvern að heri
| |
| Drottins. Ég hef beðið; ekki einn einasti hefur risið upp. Ég hef
| |
| þraukað; enginn hefur látið að sér kveða. Ég hef þagað; ekki einn
| |
| einasti hefur sagt neitt. Ég hef farið leynt; enginn hefur barist,
| |
| ekki einu sinni til málamynda. … Við skulum því, allir saman, flýta
| |
| okkur að bregðast við svo að reiði Guðs komi ekki yfir okkur eins
| |
| og lata og hirðulausa fjárhirða, að vér verðum ekki taldir heimskir
| |
| hundar, of máttlausir til að gelta."
| |
| | |
| Hin sögulega deila hafði dregist í þrjú ár þegar Loðvík konungi
| |
| tókst að koma á sáttum að hluta til á milli Tómasar og Hinriks. En
| |
| þegar erkibiskupinn sneri aftur til Lundúna 1. desember, 1170,
| |
| mátti hann þola heiftarlegan fjandskap. Þrír biskupar sem Tómas
| |
| hafði bannfært fyrir beina óhlýðni við páfann héldu til fundar við
| |
| Hinrik sem dvaldi þá í Frakklandi. Í reiðiskasti hrópaði Hinrik
| |
| orð sem fjórir riddarar hans skildu sem tilefni til að halda til
| |
| Englands og handtaka erkibiskupinn í helgidómi dómkirkjunnar í
| |
| Kantaraborg þar sem þeir svívirtu hann og myrtu hrottalega. Hin
| |
| ótrúlegu helgispjöll að myrða erkibiskup í sinni eigin dómkirkju.
| |
| vöktu skelfingu lostin viðbrögð um allan hinn kristna heim. Þegar
| |
| fréttin barst til konungs áttaði hann sig á því að misskilin ummæli
| |
| hans höfðu valdið dauða Beckets. Hinrik einangraði
| |
| sig og fastaði í fjörutíu daga og gerði síðar opinbera iðrun í dómkirkju
| |
| Kantaraborgar.
| |
| | |
| Lík Tómasar Beckets var jarðsett í grafhvelfingu í dómkirkjunni
| |
| sem varð vettvangur hundruð þúsunda pílagríma sem komu í
| |
| helgidóminn og sögðu margir frá kraftaverkum sem þeir urðu
| |
| aðnjótandi vegna fyrirbæna til Beckets. Þennan viðburð gerði rithöfundurinn
| |
| Chaucer síðan ódauðlegan í Kantaraborgarsögum
| |
| sínum. Innan þriggja ára var Tómas Becket tekinn í píslavottar og
| |
| dýrlingatölu. Kvikmyndin Becket sem byggir á leikritinu Becket
| |
| eftir Jean Anouilh er dramatísk lýsing á lífi Tómasar Beckets.
| |