Translations:El Morya/23/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
(Replaced content with ".")
Tag: Replaced
No edit summary
Tag: Manual revert
Line 1: Line 1:
.
Í trássi við nýju lögin, fór Tómas yfir Ermasund til að leggja
málið fyrir páfann. Staðráðinn í því að hefna þessa, bauð konungur
honum að afhenda ákveðnar eignir og vegsemdir og hóf
herferð til að veikja tiltrúna á hann og ofsækja hann. Loðvík
Frakkakonungur var hliðhollur kirkjunni og samþykkti að taka
við erkibiskupinum í útlegð. Þrátt fyrir að gangast á hönd hinni
ströngu Benediktusarmunkagrein Sistersíanareglunnar í Pontigny
klaustrinu í Frakklandi, fékk Tómas bréf frá biskupum og öðrum
klerkum Englands þar sem þeir hörmuðu „fjandsamlega
afstöðu“ hans til konungs og báðu hann að vera sáttfúsari og
fyrirgefa meira. Becket svaraði: „Í langan tíma hef ég þagað og
beðið eftir því að Drottinn gæti ef til vill blásið ykkur byr í brjóst
að endurheimta styrk ykkar; þó það væri ekki nema einn ykkar,
að minnsta kosti, sem myndi rísa upp og standa sem veggur til
varnar húsi Ísraels, myndi í það minnsta láta líta út fyrir að taka
þátt í baráttunni gegn þeim sem látlaust sækja dag hvern að heri
Drottins. Ég hef beðið; ekki einn einasti hefur risið upp. Ég hef
þraukað; enginn hefur látið að sér kveða. Ég hef þagað; ekki einn
einasti hefur sagt neitt. Ég hef farið leynt; enginn hefur barist,
ekki einu sinni til málamynda. … Við skulum því, allir saman, flýta
okkur að bregðast við svo að reiði Guðs komi ekki yfir okkur eins
og lata og hirðulausa fjárhirða, að vér verðum ekki taldir heimskir
hundar, of máttlausir til að gelta."
 
Hin sögulega deila hafði dregist í þrjú ár þegar Loðvík konungi
tókst að koma á sáttum að hluta til á milli Tómasar og Hinriks. En
þegar erkibiskupinn sneri aftur til Lundúna 1. desember, 1170,
mátti hann þola heiftarlegan fjandskap. Þrír biskupar sem Tómas
hafði bannfært fyrir beina óhlýðni við páfann héldu til fundar við
Hinrik sem dvaldi þá í Frakklandi. Í reiðiskasti hrópaði Hinrik
orð sem fjórir riddarar hans skildu sem tilefni til að halda til
Englands og handtaka erkibiskupinn í helgidómi dómkirkjunnar í
Kantaraborg þar sem þeir svívirtu hann og myrtu hrottalega. Hin
ótrúlegu helgispjöll að myrða erkibiskup í sinni eigin dómkirkju.
vöktu skelfingu lostin viðbrögð um allan hinn kristna heim. Þegar
fréttin barst til konungs áttaði hann sig á því að misskilin ummæli
hans höfðu valdið dauða Beckets. Hinrik einangraði
sig og fastaði í fjörutíu daga og gerði síðar opinbera iðrun í dómkirkju
Kantaraborgar.
 
Lík Tómasar Beckets var jarðsett í grafhvelfingu í dómkirkjunni
sem varð vettvangur hundruð þúsunda pílagríma sem komu í
helgidóminn og sögðu margir frá kraftaverkum sem þeir urðu
aðnjótandi vegna fyrirbæna til Beckets. Þennan viðburð gerði rithöfundurinn
Chaucer síðan ódauðlegan í Kantaraborgarsögum
sínum. Innan þriggja ára var Tómas Becket tekinn í píslavottar og
dýrlingatölu. Kvikmyndin Becket sem byggir á leikritinu Becket
eftir Jean Anouilh er dramatísk lýsing á lífi Tómasar Beckets.

Revision as of 13:43, 3 April 2024

Information about message (contribute)
From The Masters and Their Retreats
Message definition (El Morya)
Becket turned his administrative abilities and diplomatic finesse as a distinguished chancellor into ardour and devotion as archbishop. He became as strong a supporter of the papacy as he had once been of the king and freely excommunicated courtiers and nobles for their unlawful use of church property and other breaches. In the face of the king’s intent to imprison him, Becket exiled himself to France for six years. He returned to England following a partial reconciliation with the king, only to begin quarreling with him anew.

Í trássi við nýju lögin, fór Tómas yfir Ermasund til að leggja málið fyrir páfann. Staðráðinn í því að hefna þessa, bauð konungur honum að afhenda ákveðnar eignir og vegsemdir og hóf herferð til að veikja tiltrúna á hann og ofsækja hann. Loðvík Frakkakonungur var hliðhollur kirkjunni og samþykkti að taka við erkibiskupinum í útlegð. Þrátt fyrir að gangast á hönd hinni ströngu Benediktusarmunkagrein Sistersíanareglunnar í Pontigny klaustrinu í Frakklandi, fékk Tómas bréf frá biskupum og öðrum klerkum Englands þar sem þeir hörmuðu „fjandsamlega afstöðu“ hans til konungs og báðu hann að vera sáttfúsari og fyrirgefa meira. Becket svaraði: „Í langan tíma hef ég þagað og beðið eftir því að Drottinn gæti ef til vill blásið ykkur byr í brjóst að endurheimta styrk ykkar; þó það væri ekki nema einn ykkar, að minnsta kosti, sem myndi rísa upp og standa sem veggur til varnar húsi Ísraels, myndi í það minnsta láta líta út fyrir að taka þátt í baráttunni gegn þeim sem látlaust sækja dag hvern að heri Drottins. Ég hef beðið; ekki einn einasti hefur risið upp. Ég hef þraukað; enginn hefur látið að sér kveða. Ég hef þagað; ekki einn einasti hefur sagt neitt. Ég hef farið leynt; enginn hefur barist, ekki einu sinni til málamynda. … Við skulum því, allir saman, flýta okkur að bregðast við svo að reiði Guðs komi ekki yfir okkur eins og lata og hirðulausa fjárhirða, að vér verðum ekki taldir heimskir hundar, of máttlausir til að gelta."

Hin sögulega deila hafði dregist í þrjú ár þegar Loðvík konungi tókst að koma á sáttum að hluta til á milli Tómasar og Hinriks. En þegar erkibiskupinn sneri aftur til Lundúna 1. desember, 1170, mátti hann þola heiftarlegan fjandskap. Þrír biskupar sem Tómas hafði bannfært fyrir beina óhlýðni við páfann héldu til fundar við Hinrik sem dvaldi þá í Frakklandi. Í reiðiskasti hrópaði Hinrik orð sem fjórir riddarar hans skildu sem tilefni til að halda til Englands og handtaka erkibiskupinn í helgidómi dómkirkjunnar í Kantaraborg þar sem þeir svívirtu hann og myrtu hrottalega. Hin ótrúlegu helgispjöll að myrða erkibiskup í sinni eigin dómkirkju. vöktu skelfingu lostin viðbrögð um allan hinn kristna heim. Þegar fréttin barst til konungs áttaði hann sig á því að misskilin ummæli hans höfðu valdið dauða Beckets. Hinrik einangraði sig og fastaði í fjörutíu daga og gerði síðar opinbera iðrun í dómkirkju Kantaraborgar.

Lík Tómasar Beckets var jarðsett í grafhvelfingu í dómkirkjunni sem varð vettvangur hundruð þúsunda pílagríma sem komu í helgidóminn og sögðu margir frá kraftaverkum sem þeir urðu aðnjótandi vegna fyrirbæna til Beckets. Þennan viðburð gerði rithöfundurinn Chaucer síðan ódauðlegan í Kantaraborgarsögum sínum. Innan þriggja ára var Tómas Becket tekinn í píslavottar og dýrlingatölu. Kvikmyndin Becket sem byggir á leikritinu Becket eftir Jean Anouilh er dramatísk lýsing á lífi Tómasar Beckets.