Apollo and Lumina/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
No edit summary
Tags: Mobile edit Mobile web edit
Line 31: Line 31:
Athvarf Appoló og Lúmínu eru staðsett á ljósvakasviðinu uppi yfir Neðra-Saxlandi, Þýskalandi. Til undirbúnings komandi gullaldar er gífurlegu upplýsingarflóði logans úthellt úr þessu musteri. Þær milljónir engla sem þjóna undir stjórn Apollós og Lúmínu eru tilbúnar til að halda áfram að örva vitund allrar jarðar upp á Krists-stig til að svara kalli nemendanna.
Athvarf Appoló og Lúmínu eru staðsett á ljósvakasviðinu uppi yfir Neðra-Saxlandi, Þýskalandi. Til undirbúnings komandi gullaldar er gífurlegu upplýsingarflóði logans úthellt úr þessu musteri. Þær milljónir engla sem þjóna undir stjórn Apollós og Lúmínu eru tilbúnar til að halda áfram að örva vitund allrar jarðar upp á Krists-stig til að svara kalli nemendanna.


Þessir englar, ásamt þeim englum sem þjóna við athvarf [[Jófíels og Kristínar]], [[drottins Lantós]], [[guðsins og gyðjunnar Merú]], drottins [[Gátama Búddha]], drottins [[Himalaja]], [[drottins Maitreya]] og [[Heimskennaranna]] [[Jesú]] og [[Kútúmis]], ætti að kalla til uppljómunar alls mannkyns því að þeir eru jafnir að vígi í hvívetna við hið mikla verkefni sem fyrir höndum er. Biðjið þá um að koma við upplýstum, vitrænum aðgerðum í öllum aðstæðum, sérstaklega þeim sem hafa áhrif á framtíð jarðar og þróunar hennar.
Þessir englar, ásamt þeim englum sem þjóna við athvarf [[Jófíels og Kristínar]], [[drottins Lantós]], [[guðsins og gyðjunnar Merú]], drottins [[Gátama Búddha]], drottins [[Himalaja]], [[drottins Maitreya]] og [[Heimskennaranna]] [[Jesú]] og [[Kútúmis]], ætti að kalla til uppljómunar alls mannkyns því að þeir standa jafnir að vígi í hvívetna fyrir hið mikla verkefni sem er fyrir höndum. Biðjið þá um að koma við upplýstum, vitrænum aðgerðum í öllum aðstæðum, sérstaklega þeim sem hafa áhrif á framtíð jarðar og þróunar hennar.


<span id="See_also"></span>
<span id="See_also"></span>

Revision as of 10:14, 17 November 2024

Other languages:
Stytta af Appoló (rómversk eftirmynd af upprunalegri bronsstyttu)

Apolló og Lúmína eru verndarar hinnar kosmísku Krists-vitundar. Elóhímar annars geislans aðstoða þá sem þrá að þekkja Guð í gegnum huga sonarins, annarar persónu þrenningarinnar. Frá sjónarhóli Elóhíma annars geisla er allt "útfelling og framköllun úr huga Guðs“.

Forn-Grikkland

Hinn goðsagnakenndi Apólló, sá guð sem Grikkir þekktu fyrir löngu, gæti vel verið framsetning minningarinnar um forn kynni við þennan elóhím. Í aldanna rás tóku guðirnir og gyðjurnar hins vegar á sig fleiri og fleiri mannleg einkenni í huga fólksins. Þess vegna þarf það ekki endilega að endurspegla raunveruleika þessa elóhíms sem nú er eignað Appoló sem guði grískrar goðafræði.

Apollo var þekktur í píþagorasarhefðinni sem tákn karlmannlegrar fegurðar, sólguðinn sem persónugerir hið andlega ljós í mynd sólarinnar. Hann stendur fyrir niðurstigningu himins á jörðu. Apolló er af sumum talinn vera sólarlogosinn, milligöngumaðurinn, Vishnú, Míþra, Hórus, hið alheimslega Orð. Apolló var löggjafi grísku borgríkjanna. Sem guð spásagna og spádóma tjáði hann sig við mannkynið fyrir munn spámanna og véfrétta eins og í hinni frægu véfrétt í Delfí.

Stytta af Appoló frá musteri Seifs, Ólympíu

Logi uppljómunarinnar

Logi Apolló er gylltur og hjúpaður slíðri úr bláum eldingum. Blái loginn virkar sem verndandi kraftsvið orku sem umlykur ljós Krists. Þessi bláa elding sker í gegnum þykkni mannlegra mistaka og misbeitinga og greiðir götuna fyrir hinn gullna loga Lúmínu sem sýnir fullkomnun sjö þátta Krists-hugans. Tvíburalogarnir Apolló og Lúmína blása viti í höfuðskepnur jarðar, lofts, elds og vatns sem er lukt í miðju frumeindarinnar — í kjarna hins demants-skínandi huga Guðs.

Apolló og Lúmína vilja að við einbeitum okkur að menntun og örvun hins guðlega huga mannkynsins. Þann 6. júlí, 1975, færði Apolló mannkyninu stóra náðargjöf sem var upplýsingarsproti til að efla huga mannsins. Apolló sagði að þessi blessun væri aðeins færð mannkyninu einu sinni á tíu þúsund ára fresti. Hann sagði: „Mankynið getur, ef það kýs, notað sprotann til að ganga inn í nýtt tímabil og blómaskeið.“[1]

Hinn Guðdómlegi mikli stjórnandi útskýrði að þetta rafskaut orkunnar gæti snúið við allri neikvæðni sem nokkurn tíma hefur verið lögð á okkur. „Þessi ívilnun kom til þess að síðasta ársfjórðunginn fram að aldamótum ættu ljósberarnir að hafa alla burði til að örva guðlega vitund“[2] svo að endurreisa megi huga Guðs innra með þeim.

Þið gætuð séð fyrir ykkur upplýsingarsprotann virkjaðan innra með ykkur. Sjáið hann sem skarpt gyllt ljós sem tifar í heila ykkar. Sjáið þetta rafskaut brenna upp öll óhreinindi sem gætu hindrað ljósflæði Guðs í huga ykkar. Sjáið líka kórónu úr gylltu ljósi sem er birtingarmynd hugar Guðs lagða yfir höfuð ykkar og yfir höfuð ljósbarna á jörðu.

Athvarf

Aðalgrein: Athvarf Appolós og Lúminu

Athvarf Appoló og Lúmínu eru staðsett á ljósvakasviðinu uppi yfir Neðra-Saxlandi, Þýskalandi. Til undirbúnings komandi gullaldar er gífurlegu upplýsingarflóði logans úthellt úr þessu musteri. Þær milljónir engla sem þjóna undir stjórn Apollós og Lúmínu eru tilbúnar til að halda áfram að örva vitund allrar jarðar upp á Krists-stig til að svara kalli nemendanna.

Þessir englar, ásamt þeim englum sem þjóna við athvarf Jófíels og Kristínar, drottins Lantós, guðsins og gyðjunnar Merú, drottins Gátama Búddha, drottins Himalaja, drottins Maitreya og Heimskennaranna Jesú og Kútúmis, ætti að kalla til uppljómunar alls mannkyns því að þeir standa jafnir að vígi í hvívetna fyrir hið mikla verkefni sem er fyrir höndum. Biðjið þá um að koma við upplýstum, vitrænum aðgerðum í öllum aðstæðum, sérstaklega þeim sem hafa áhrif á framtíð jarðar og þróunar hennar.

Sjá einnig

Elóhím

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Apolló og Lúmína.”

  1. Elizabeth Clare Prophet, The Great White Brotherhood in the Culture, History and Religion of America, bls. 269–70.
  2. The Great Divine Director, „A Path of Karma Yoga“, Pearls of Wisdom, 31. bindi, nr. 73, 30. október, 1988.