Raphael and Mother Mary's retreat/is: Difference between revisions
No edit summary |
No edit summary |
||
Line 27: | Line 27: | ||
[[Lanelló]] hefur tilkynnt að ljós Fátima hafi verið jarðtengt við [[Innra athvarfið]]: | [[Lanelló]] hefur tilkynnt að ljós Fátima hafi verið jarðtengt við [[Innra athvarfið]]: | ||
<blockquote>Þannig streymir heilandi vatn hinnar guðdómlegrar móður djúpt úr jörðu hins stórbrotna Yellowstone [þjóðgarðs], og þess vegna er hringbogi [[Vestur Shamballa]] | <blockquote>Þannig streymir heilandi vatn hinnar guðdómlegrar móður djúpt úr jörðu hins stórbrotna Yellowstone [þjóðgarðs], og þess vegna er hringbogi [[Vestur Shamballa]] ákall um akkerisfestingu við Fátíma athvarfið. Þannig er þetta hin sanna köllun dagsins, að Fátíma, Fátíma okkar — staðurinn þar sem María talar og heyrist og [er] ekki afneitað af kirkju eða ríki — þar sem Fátima endurfæðist [í [[Hjarta Innra athvarfsins]]] jafnvel eins og [[Kamelot]] er kallað aftur fram [til að vera reist á [[Royal Teton setrinu]]].<ref>Lanello, „“The Bodhisattva Vow: The Messengers Give Their Christhood to a World: Fátíma athvarfið sem er jarðtengd í vestur-Shamballa,“ {{POWref-is|31|34|, 2. júlí, 1988}}</ref></blockquote> | ||
<span id="Sources"></span> | <span id="Sources"></span> |
Revision as of 21:11, 21 December 2024
Aðhvarf Rafaels og Maríu guðsmóður er staðsett í ljósvakaríkinu uppi yfir Fátíma í Portúgal. Græðandi loginn sem logar á altari þeirra var jarðtengt í efnisáttundinni þegar María birtist smalabörnunum þremur í Fátíma árið 1917. Þar er ljósstraumur sem streymir eins og voldugur foss úr ljósvakamusterinu til móttökustöðvarinnar (beinisins) á efnissviðinu og fram á þessa stundu hafa pílagrímar læknast af „vatni“ heilunarlogans.
Rafael lýsir einum af sölunum í athvarfi sínu:
Ég myndi fara með ykkur núna í það sem við köllum Stóra speglasalinn. Ég myndi leyfa þeim ykkar sem geta séð í þessum volduga sal endurspeglun guðlegrar fullkomnunar. Hafið þið séð fegurðina í verkum Leonardo da Vinci? Hafið þið séð fegurð hinna voldugu myndhöggvara endurreisnartímans? Hafið þið séð á þessari plánetu fallegan ljóma engils í höggmynduðum marmara?
Leyfið mér nú að biðja ykkur um að koma með mér á stað þar sem Guð er, þar sem í hinum stórbrotna myndsal eru styttur, ef svo má segja, úr lifandi eldsanda, verur svo tignarlegar sem tendra eld í hjörtum ykkar, hverra mynd sem sál ykkur er römmuð í, verur í slíkum myndum sem af Guði voru nefndar kerúbar, himneskir serafar og af helgri reglu engla, verur ljóssins með himneskri útgeislun, verur sem skelfast eigi hugmyndir dauðlegra manna en eiga fullkomlega heima hjá Guði og með krafti hinna miklu skapandi andlegra vera.[1]
Þessar styttur af fullkomnum kari og konu, Krists-bornum mönnum, eru sýndar svo að hægt sé að taka foreldra í fíngerðari líkama sínum til að virða þær fyrir sér og hugleiða fullkomnun sálarinnar eða barnsins sem kemur í móðurkvið til að fullkomna starfsemina í musteri líkamams og flæði ljóss í orkustöðvunum.
Opnun athvarfsins
Árið 1988 tilkynnti Rafael erkiengill um opnun þessa athvarfs í fyrirlestri sem hann flutti í Lissabon í Portúgal:
Látum þá alla sem standa fyrir sannleikanum í vísindum, trúarbrögðum og stjórnsýslu, á sjálfri braut sálarsambands við Guð, vita að við á fimmta geislanum opnum athvarf okkar í Fátíma til að taka á móti öllum þeim hugprúðu sem hafa verið útskúfaðir í eigin fjölskyldum og heimabæjum vegna þess að þeir hafa tekið afstöðu með sannleikanum, fyrir guðdómlegu listina, fyrir guðdómlegu tónlistina og fyrir nýja öld frelsis, friðar og uppljómunar.
Allir, sem hafa yfirgefið rótgrónar aðferðir iðju sinna, fundið í því hræsni og undanslætti, allir sem eru farnir að efast jafnvel um tilvist almáttugs Guðs, þeir sem kalla sig trúleysingja en í sannleika sagt efast ekki um Guð en efast um alla sem hafa rangfært hann, látið þá vita að við tvö, tvíburalogarnir, erkienglar fimmta geislans, kynnum fyrir heiminum opnun á dyrum musterisins okkar sem fyrstu almennu opnunina á athvarfi erkienglanna fyrir þeim [sem hafa staðist prófraunir] launhelga drottna geislanna sjö .[2]
Lanelló hefur tilkynnt að ljós Fátima hafi verið jarðtengt við Innra athvarfið:
Þannig streymir heilandi vatn hinnar guðdómlegrar móður djúpt úr jörðu hins stórbrotna Yellowstone [þjóðgarðs], og þess vegna er hringbogi Vestur Shamballa ákall um akkerisfestingu við Fátíma athvarfið. Þannig er þetta hin sanna köllun dagsins, að Fátíma, Fátíma okkar — staðurinn þar sem María talar og heyrist og [er] ekki afneitað af kirkju eða ríki — þar sem Fátima endurfæðist [í Hjarta Innra athvarfsins] jafnvel eins og Kamelot er kallað aftur fram [til að vera reist á Royal Teton setrinu].[3]
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Raphael and Mother Mary’s retreat”.
- ↑ Archangel Raphael, 3. nóvember, 1966.
- ↑ Erkiengill Raphael, „The Fulfillment of an Ancient Promise,“ Pearls of Wisdom, 31. bindi, nr. 35, 3. júlí, 1988.
- ↑ Lanello, „“The Bodhisattva Vow: The Messengers Give Their Christhood to a World: Fátíma athvarfið sem er jarðtengd í vestur-Shamballa,“ Pearls of Wisdom, 31. bindi, nr. 34, 2. júlí, 1988.