The Spirit of Christmas/is: Difference between revisions
(Created page with "Þess vegna, ástvinir, skiljið að þessi andi felur í sér sameiginlega vitund um Krists-verund alls anda Stóra hvíta bræðralagsins — allra uppstiginna vera og engla og herra, kosmískra hersveita D<small>rottins</small> sem eru þessi Kristur. Við skulum því gera okkur grein fyrir því að í öllum táknum er veruleiki; í frumgerðum er upprunalegt snið myndarinnar sem er fullkomnuð í Kristi; og í jólasveininum sjálfum er hin langvarandi von í...") |
No edit summary |
||
Line 17: | Line 17: | ||
Það sem gleður börn — leikir og leikföng og hlutir og glingur í sokkum — hjartkæru vinir, upphaflega gjafir sem gefnar voru hverju hjartans barni var ætlað að auka skynjun og skilning barnsins á persónu Krists. Þegar þið hugsið um gjafirnar sem gefnar eru þessa dagana, áttið þið ykkur á því að sumar gjafir veita einstaklingnum meiri sjálfsmynd á meðan aðrar hampa ytri mannninum og hafa tilhneigingu til að skapa meiri [[maya]]-tálsýn [[skurðgoðadýrkunar]]. Og þannig, með því að leggja áherslu og veita hinu ytra sjállfi athygli, missir einstaklingurinn af frábæru tækifæri þessarar stundar til að ganga sannarlega inn í hjarta þeirrar kosmísku veru sem er þekkt sem andi jólanna. | Það sem gleður börn — leikir og leikföng og hlutir og glingur í sokkum — hjartkæru vinir, upphaflega gjafir sem gefnar voru hverju hjartans barni var ætlað að auka skynjun og skilning barnsins á persónu Krists. Þegar þið hugsið um gjafirnar sem gefnar eru þessa dagana, áttið þið ykkur á því að sumar gjafir veita einstaklingnum meiri sjálfsmynd á meðan aðrar hampa ytri mannninum og hafa tilhneigingu til að skapa meiri [[maya]]-tálsýn [[skurðgoðadýrkunar]]. Og þannig, með því að leggja áherslu og veita hinu ytra sjállfi athygli, missir einstaklingurinn af frábæru tækifæri þessarar stundar til að ganga sannarlega inn í hjarta þeirrar kosmísku veru sem er þekkt sem andi jólanna. | ||
Þess vegna, ástvinir, skiljið að þessi andi felur í sér sameiginlega vitund um Krists-verund alls anda [[Stóra hvíta bræðralagsins]] — allra uppstiginna vera og engla og | Þess vegna, ástvinir, skiljið að þessi andi felur í sér sameiginlega vitund um Krists-verund alls anda [[Stóra hvíta bræðralagsins]] — allra uppstiginna vera og engla og meistara, kosmískra hersveita D<small>rottins</small> sem eru þessi Kristur. Við skulum því gera okkur grein fyrir því að í öllum táknum er veruleiki; í frumgerðum er upprunalegt snið myndarinnar sem er fullkomnuð í Kristi; og í jólasveininum sjálfum er hin langvarandi von í öllu um að mynd hins kosmíska Krists muni koma til að færa hina sönnu gleði, gleði hjartans fyllt með kærleika.<ref>Lanello, "The Spirit of Christmas," {{POWref-is |25|68}}</ref> | ||
</blockquote> | </blockquote> | ||
Revision as of 12:51, 23 December 2024
Andi jólanna er voldug ljósvera af háum búddhískum stigum. Lanelló talar um þessa miklu veru og ljósið sem hún ber:
Sá sem er þekktur sem andi jólanna er því kominn til að segja frá fæðingu Jesú Krists á bakgrunni myrkustu stundar náttúrunnar á árinu. Tilkynningin við vetrarsólstöður um að stjarnan hans birtist er mikið alheimssjónarspil; og það er hér til að kenna okkur að í dimmustu nóttum mennskrar þrár birtist stjarna vonarinnar og fæðing frelsarans.
Ég kem í anda jólanna svo að þið getið skilið að það er algjörlega kleift fyrir fleiri en einn son Guðs að eiga hlut í heilögu embætti, að gegna hinum guðlega ásetningi á beygðum kvisti, alveg á punktinum, miðpunkti kvarskristals sem nær yfir heim brennandi ásetnings. Hjartkæru vinir, ég kem því sem andi jólanna, þar sem þið getið séð fyrir komu þess sem er þekktur sem jólasveinninn.
Minnist hjartafylgsni barns — barnsins ykkar, ykkar sjálfs — sem hugsar um komu jólasveinsins og hvernig hann kæmi inn í húsið og hvernig þið mynduð skilja eftir smákökur og mjólk og jafnvel snarl handa hreindýrunum. Minnist hvernig þið, í fullri trú, vegna þess að foreldrar ykkar höfðu sagt ykkur, gengust inn í anda jólasveinsins. Og munið líka vonbrigðin við að komast að snoðum um að jólasveinninn var ekki raunverulegur.
En þetta er ekki satt! Jólasveinninn er raunverulegur. Og ég er hér til að segja ykkur að jólasveinninn sjálfur er dæmigert kerald fyrir anda jólanna, sá sem felur í sér þessa nærveru sem ég hef gengið inn í.
Það er rangt að segja börnum að jólasveinninn sé ekki raunverulegur. Það er rétt að útskýra fyrir þeim að andi jólanna er sannarlega manneskja — manneskja sem er raunveruleg í Guði, manneskja sem er kosmísk vera, sem fyllir hjörtu fólksins með eftirvæntingu eftir allra stærstu gjöfinni, gjöf persónulegrar Krists-hyggju.
Það sem gleður börn — leikir og leikföng og hlutir og glingur í sokkum — hjartkæru vinir, upphaflega gjafir sem gefnar voru hverju hjartans barni var ætlað að auka skynjun og skilning barnsins á persónu Krists. Þegar þið hugsið um gjafirnar sem gefnar eru þessa dagana, áttið þið ykkur á því að sumar gjafir veita einstaklingnum meiri sjálfsmynd á meðan aðrar hampa ytri mannninum og hafa tilhneigingu til að skapa meiri maya-tálsýn skurðgoðadýrkunar. Og þannig, með því að leggja áherslu og veita hinu ytra sjállfi athygli, missir einstaklingurinn af frábæru tækifæri þessarar stundar til að ganga sannarlega inn í hjarta þeirrar kosmísku veru sem er þekkt sem andi jólanna.
Þess vegna, ástvinir, skiljið að þessi andi felur í sér sameiginlega vitund um Krists-verund alls anda Stóra hvíta bræðralagsins — allra uppstiginna vera og engla og meistara, kosmískra hersveita Drottins sem eru þessi Kristur. Við skulum því gera okkur grein fyrir því að í öllum táknum er veruleiki; í frumgerðum er upprunalegt snið myndarinnar sem er fullkomnuð í Kristi; og í jólasveininum sjálfum er hin langvarandi von í öllu um að mynd hins kosmíska Krists muni koma til að færa hina sönnu gleði, gleði hjartans fyllt með kærleika.[1]
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “The Spirit of Christmas”.
- ↑ Lanello, "The Spirit of Christmas," Pearls of Wisdom, 25. bindi, nr. 68.