Crystal cord/is: Difference between revisions
No edit summary |
PeterDuffy (talk | contribs) No edit summary |
||
Line 31: | Line 31: | ||
Hinn [[Special:MyLanguage/Great Divine Director|Guðdómlegi mikli stjórnandi]] útskýrir þennan atburð: | Hinn [[Special:MyLanguage/Great Divine Director|Guðdómlegi mikli stjórnandi]] útskýrir þennan atburð: | ||
<blockquote>Sumir nemanna vita að þegar nauðsynlegt varð að setja skorður á mannkynið vegna grimmdar þess og skepnuskapar, þá skertu [[Special:MyLanguage/Lords of Karma|Karmadrottnarnir]] úthlutun alheimskraftsins til margra lífsstrauma á plánetunni uns lífsstraumurinn sem flæddi inn í líkama mannsins efst á höfðinu (sem hafði eitt sinn verið á stærð við [[Special:MyLanguage/tube of light|ljóssúluna]]) varð að mjög þröngum streng úr silfurlituðu ljósefni sem tiltölulega lítill hluti orku gat runnið í gegnum. | <blockquote> | ||
Sumir nemanna vita að þegar nauðsynlegt varð að setja skorður á mannkynið vegna grimmdar þess og skepnuskapar, þá skertu [[Special:MyLanguage/Lords of Karma|Karmadrottnarnir]] úthlutun alheimskraftsins til margra lífsstrauma á plánetunni uns lífsstraumurinn sem flæddi inn í líkama mannsins efst á höfðinu (sem hafði eitt sinn verið á stærð við [[Special:MyLanguage/tube of light|ljóssúluna]]) varð að mjög þröngum streng úr silfurlituðu ljósefni sem tiltölulega lítill hluti orku gat runnið í gegnum. | |||
<blockquote>Þar sem tengsl eru á milli stærðar lífsstraumsins, eða silfurþráðsins, sem tíðnisvið vitundarvíddar mannsins titrar á, varð það valdur að stórfelldir minnkun strengsins sem samsvaraði skerðingu úthlutaðrar lífslengdar mannkynsins sem og stigminnkandi vídd vitundarsviðsins.</blockquote> | <blockquote>Þar sem tengsl eru á milli stærðar lífsstraumsins, eða silfurþráðsins, sem tíðnisvið vitundarvíddar mannsins titrar á, varð það valdur að stórfelldir minnkun strengsins sem samsvaraði skerðingu úthlutaðrar lífslengdar mannkynsins sem og stigminnkandi vídd vitundarsviðsins.</blockquote> |
Revision as of 21:03, 4 June 2025
Ljósflæðið milli anda hins lifandi Guðs og sálar ykkar er um silfurþráðinn. Það er ljósþráðurinn og tengiliðurinn, ekki aðeins við Guð heldur einnig við allar sálir sem eru uppstignar í hvíta ljósinu og mynda Stóra hvíta bræðralagið. (Hugtökin silfurþráðurinn og kristalstrengurinn eru samheiti og lýsa skynjun manna á „naflastreng“ sálarinnar sem þeir eru bundnir við og fá næringu andans í gegnum hann.)
Silfurþráðurinn á uppruna sinn í guðdómnum í Hinni miklu meginsól. Þið getið séð hann fyrir ykkur sem ljósrönd sem stígur niður óendanleikann til hinnar voldugu ÉG ER-nærveru ykkar, fer í gegnum Krists-sjálf ykkar til að næra sál ykkar og hina fjóra lægri líkama. Allir sem eru af Guði hafa þennan stórkostlega „kristalstreng“ sem tengir öll svið veru hans — hjarta til hjarta — við sólina. Þetta er það sem heilagur Jóhannes sá sem lífsins fljót.[1]
Jarðtenging við líkamann
Silfursþráðurinn fer inn í fjóra lægri hluta líkamans í gegnum höfuðið; hægt er að sjá tif hans áþreifanlega með því að fylgjast með mjúka blettinum á höfði barnsins. Þegar silfurþráðurinn hefur náð stöðugleika í öndun og hjartslætti við fæðingu, og þrígreindi loginn kviknar aftur í leynihólfi hjartans og barnið fer að „styrkjast í anda“,[2] byrjar mjúki bletturinn að lokast. Þegar barnið er um tveggja ára gamalt er hann ekki lengur sýnilegur.
Í móðurkviði heldur hjartaloginn og kristalstrengurinn móðurinnar lífi í barninu. Sú stund þegar naflastrengurinn er klipptur – þegar heilagur andi hefur blásið lífsanda í formið – er táknræn stund (og stundum raunveruleg stund, allt eftir réttri tímasetningu klippingarinnar) þegar silfurþráður barnsins stígur niður frá hinni ástkæru ÉG ER-nærveru. Fyrsta grát eða hljóð barnsins er oft vísbending um skyndilega greiningu logans sem sprettur upp í hjartanu, um helgan andardrátt sem fyllir lungun og um líkamskenndir sem nú eru orðnar sterkar.
Fráhvarf kristalþráðsins við dauðann
Skyggnir menn á 19. öld greindu frá því að hafa staðið yfir deyjandi fólki og horft á silfurþráðinn losna. Andamiðlar sem stóðu við dánarbeð sálna sáu að eitthvað silfurlitað virtist losna frá líkama þeirra og svífa upp í loftið. Þeir lýstu því sem fallegum silfurborða sem þeir gátu séð með innri sjón sinni.[3]
Raunveruleg dánarorsök er að þessi silfurþráður er skorinn (guðlegur verknaður), sem veldur því að þrígreindur loginn „slokknar“ í efnislíkamanum. Og þetta er nákvæm og sönn merking Prédikarans 12:6–7, þar sem segir: „ ... áður en silfurþráðurinn slitnar og gullskálin brotnar og skjólan mölvast við lindina og hjólið brotnar við brunninn [myndlíking fyrir samdrátt silfurstrengsins og samtímis afturköllun þrígreinda logans — þ.e. „brot“ hjartans, uppgjöf lífsandans og með honum sálarinnar og upptaka ljóssins frá orkustöðvunum — „hjólunum“]. Og moldin hverfur aftur til jarðarinnar þar sem hún áður var og andinn til Guðs sem gaf hann.“
Þegar silfurþráðurinn og þrígreindi loginn hverfa frá lægri starfstækjunum hættir efnishjartað að slá og lífskrafturinn og andardrátturinn sem lífguðu formið snúa aftur til hjarta Krists-sjálfsins og ljósvakasviðsins. Ljóssálin rís einnig upp – með uppsöfnuðu ljósi orkustöðvanna sem hafa verið ofin í brúðkaupsklæðin – til ljósvakasviðsins þar sem hún dvelur „klædd“ í ljósvakahjúpinn uns hún endurfæðist á ný þegar lægri starfstækin þrjú eru endursegulmögnuð samkvæmt innra forsniðinu á meðgöngu í móðurkviði.
Minnkun kristalstrengsins
Á fyrri öldum var þessi silfurþráður jafnstór í þvermál og ljósrör og orkustraumurinn frá nærverunni var stórkostlegur. Menn lifðu frá átta til níu hundruð ára aldurs.[4] vegna þess að þessi lífsnauðsynlega demba, sem líkja má við Níagarafossana, hellti lífinu og kjarna lífsins í efnsform þeirra. Það hélt ófullkomleika frá. Það hélt sjúkdómum frá. Það viðhélt sambandi sálar þeirra við Guð.
Þá fór mannkynið að misnota lögmálið. Það varð til þess að gefin voru út guðleg fyrirmæli sem endurspeglast í tilskipun Karmíska ráðsins, sem sett voru fram til að koma í veg fyrir að mannkynið misnotaði sífellt meira kraft Guðs (því við erum öll ábyrg fyrir því hversu mikla orku við notum eða misnotum), afnam Guð þetta mikla flæði og minnkaði silfurþráðinn í núverandi stærð.
Hinn Guðdómlegi mikli stjórnandi útskýrir þennan atburð:
Sumir nemanna vita að þegar nauðsynlegt varð að setja skorður á mannkynið vegna grimmdar þess og skepnuskapar, þá skertu Karmadrottnarnir úthlutun alheimskraftsins til margra lífsstrauma á plánetunni uns lífsstraumurinn sem flæddi inn í líkama mannsins efst á höfðinu (sem hafði eitt sinn verið á stærð við ljóssúluna) varð að mjög þröngum streng úr silfurlituðu ljósefni sem tiltölulega lítill hluti orku gat runnið í gegnum.
Þar sem tengsl eru á milli stærðar lífsstraumsins, eða silfurþráðsins, sem tíðnisvið vitundarvíddar mannsins titrar á, varð það valdur að stórfelldir minnkun strengsins sem samsvaraði skerðingu úthlutaðrar lífslengdar mannkynsins sem og stigminnkandi vídd vitundarsviðsins.
Þið minnist þess að á dögum Metúsalem lifðu menn til margra hundruða ára. Þá endurspeglaðist minnkun á hraða niðurlækkandi orku í minnkun á lífslengd, ásamt fyrrnefndri vitundarvídd.
Í reynd þýddi þetta að sveiflutíðni hamingjunnar sem maðurinn gat upplifað minnkaði og einnig vitund hans og varurð. Og þó að mannkynið hafi, í krafti ýmissa andlegra æfinga, getað vaknað til betri vitundar, þá hefur efnislegt starfstæki mannsins og heilauppbygging hans stöðugt hindrað flæði lífskjarnans vegna þess að bikar vitundarinnar hefur minnkað.[5]
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lost Teachings on Your Higher Self.
- ↑ Opinb. 22:1.
- ↑ Lúkas 1:80; 2:40.
- ↑ Max Heindel fjallar um losun silfurstrengsins við dauðann í The Rosicrucian Cosmo-Conception (1906; endurprentun, Pasadena, Kaliforníu: Wood og Jones, 1974), bls. 9–102.
- ↑ 1. Mós 5:3–32. Þetta er lýsandi fyrir tímabilið fyrir nóaflóðið (þegar Atlantis sökk).
- ↑ Mark L. Prophet, The Soulless One: Cloning a Counterfeit Creation, 12. kafli; Pearls of Wisdom, 8. bindi, nr. 14.