Issa/is: Difference between revisions
(Replaced content with "{{LYJ}}.") |
No edit summary |
||
| Line 6: | Line 6: | ||
<div class="mw-translate-fuzzy"> | <div class="mw-translate-fuzzy"> | ||
Hliðstæðurnar milli heilags Issa og [[Special:MyLanguage/Jesus|Jesú]] voru ótrúlegar sem leiddi til þess að Nótovitch komst að þeirri niðurstöðu að handritin greindu frá æskuárum Jesú á aldrinum 13 til 30 ára sem skortir í frásögn Biblíunnar. Hann birti söguna um uppgötvun sína árið 1890 í ritinu ''Ævi heilags Issa (Life of Saint Issa)'' (á ensku kom þýðingin út undir heitinu ''The Unknown Life of Christ'', 1895. <ref> | Hliðstæðurnar milli heilags Issa og [[Special:MyLanguage/Jesus|Jesú]] voru ótrúlegar sem leiddi til þess að Nótovitch komst að þeirri niðurstöðu að handritin greindu frá æskuárum Jesú á aldrinum 13 til 30 ára sem skortir í frásögn Biblíunnar. Hann birti söguna um uppgötvun sína árið 1890 í ritinu ''Ævi heilags Issa (Life of Saint Issa)'' (á ensku kom þýðingin út undir heitinu ''The Unknown Life of Christ'', 1895. <ref>Issa handritið hefur verið gefið út íslensku, sjá Hartmann Bragason. [https://www.penninn.is/is/book/austurlenskar-raetur-kristninnar Austurlenskar rætur kristninnar. Upprunalegar kenningar frumkristninnar og guðfræði nýja tímans]. Reykjavík, Bræðralagsútgáfan, 2022.</ref>. Samkvæmt Nótovitch voru upprunalegu Pali-handritin um líf heilags Issa á bókasafni Lhasa í [[Special:MyLanguage/Tibet|Tíbet]] þar sem Dalai Lama bjó. | ||
</div> | </div> | ||
Revision as of 13:01, 13 June 2025


Árið 1887 ferðaðist rússneskur læknir, Nicolas Nótovitch, til tíbetsku borgarinnar Hímis, hátt í Himalajafjöllum, í leit að fornum ritum um líf manns sem búddhamenn kölluðu heilagan Issa. Í Himis-klaustrinu las æðsti lama-presturinn fyrir hann úr fornum handritum og Notovitch skrifaði niður söguna um Issa - Ísraelsmann sem ferðaðist til austurs til að kynna sér helg rit og sneri síðan aftur til að kenna þjóð sinni í Palestínu þar sem hann var krossfestur.
Hliðstæðurnar milli heilags Issa og Jesú voru ótrúlegar sem leiddi til þess að Nótovitch komst að þeirri niðurstöðu að handritin greindu frá æskuárum Jesú á aldrinum 13 til 30 ára sem skortir í frásögn Biblíunnar. Hann birti söguna um uppgötvun sína árið 1890 í ritinu Ævi heilags Issa (Life of Saint Issa) (á ensku kom þýðingin út undir heitinu The Unknown Life of Christ, 1895. [1]. Samkvæmt Nótovitch voru upprunalegu Pali-handritin um líf heilags Issa á bókasafni Lhasa í Tíbet þar sem Dalai Lama bjó.
Gagnrýnendur héldu því fram að frásögn Nótovich um handritin væri fölsuð. Hins vegar sá Swami Abhedananda, fræðimaður og lærisveinn hindú-dýrlingsins heilags Ramakrishna, sömu skjöl í Hímis árið 1925. Nicholas Roerich, rússneskur fornleifafræðingur, rithöfundur, listamaður og heimspekingur sá sömu eða svipuð skjöl árið 1925. Roerich uppgötvaði einnig ferð Jesú til Austurlanda sem skráð er í munnmælasögum svæðisins. Hann sagði: „Á hvaða hátt gæti nýleg fölsun komist inn í vitund alls Austurins?
Sjá einnig
Til frekari upplýsinga
Elizabeth Clare Prophet, The Lost Years of Jesus: Documentary Evidence of Jesus’ 17-Year Journey to the East.
Heimildir
Pearls of Wisdom, 25. bindi, nr. 58.
Elizabeth Clare Prophet, 6. óktóber, 1987.
- ↑ Issa handritið hefur verið gefið út íslensku, sjá Hartmann Bragason. Austurlenskar rætur kristninnar. Upprunalegar kenningar frumkristninnar og guðfræði nýja tímans. Reykjavík, Bræðralagsútgáfan, 2022.