The Summit Lighthouse/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
No edit summary
Line 36: Line 36:
== Tækifæri til að læra kenningarnar ==
== Tækifæri til að læra kenningarnar ==


Skipulagskröfur vaxandi hreyfingar hafa hinir uppstignu meistarar uppfyllt með stofnun [[Special:MyLanguage/Church Universal and Triumphant|Church Universal and Triumphant]] hinnar (Sigursælu alheimskirkju), [[Special:MyLanguage/Summit University|Summit University]] (Háskólann á tindinum), [[Special:MyLanguage/Montessori International|Montessori International]] (Alþjóðlega Montessori-skólann), og opnun samfélagslegra kennslumiðstöðva um allan heim. En The Summit Lighthouse stendur sem máttarturn á klettinum, tákn ljóss [[Special:MyLanguage/I AM THAT I AM|ÉG ER SÁ SEM ÉG ER]] og tinds í tilveru hvers og eins, hin nærtæka hjálp á erfiðleikatímum. Fyrir þúsundir hollustumanna sannleikans hefur The Summit Lighthouse staðið sem viti á tindinum sem lýsir í gegnum nóttina, og leiðbeint sálinni í höfn veruleikans.
Skipulagskröfur vaxandi hreyfingar hafa hinir uppstignu meistarar uppfyllt með stofnun [[Special:MyLanguage/Church Universal and Triumphant|Church Universal and Triumphant]] hinnar (Sigursælu alheimskirkju), [[Special:MyLanguage/Summit University|Summit University]] (Háskólann á tindinum), [[Special:MyLanguage/Montessori International|Montessori International]] (Alþjóðlega Montessori-skólann), og opnun samfélagslegra kennslumiðstöðva um allan heim. En The Summit Lighthouse stendur sem máttugur turn á klettinum, tákn ljóss [[Special:MyLanguage/I AM THAT I AM|ÉG ER SÁ SEM ÉG ER]] og tinds í tilveru hvers og eins, hin nærtæka hjálp á erfiðleikatímum. Fyrir þúsundir hollustumanna sannleikans hefur The Summit Lighthouse staðið sem viti á tindinum sem lýsir í gegnum nóttina, og leiðbeint sálinni í höfn veruleikans.


Our standard is commitment to cosmic purpose and to the brotherhood of man under the fatherhood of God. Those whose loyalties are the same will find much in common with our service. All truth has its origin in universal law. The consciousness of man, as a repository of truth, provides opportunity for endless research. Those who study with us learn how they can overcome deep-seated limitations that, in some cases, from birth onward have prevented their manifestation of the full and rich life they were intended to enjoy.
Our standard is commitment to cosmic purpose and to the brotherhood of man under the fatherhood of God. Those whose loyalties are the same will find much in common with our service. All truth has its origin in universal law. The consciousness of man, as a repository of truth, provides opportunity for endless research. Those who study with us learn how they can overcome deep-seated limitations that, in some cases, from birth onward have prevented their manifestation of the full and rich life they were intended to enjoy.

Revision as of 12:15, 6 October 2025

Uppstigni meistarinn El Morya frá Darjeeling, Indlandi stofnaði Summit Lighthouse (Ljósvitann á tindinum) í Washington, D.C., árið 1958 í þeim tilgangi að birta kenningar uppstignu meistaranna sem voru miðlaðar í gegnum boðberana Mark L. Prophet og Elizabeth Clare Prophet.

Summit Lighthouse eru einstök óháð andleg og háspekileg samtök sem urðu vettvangur fyrir uppstignu meistarana og nema þeirra um allan heim. Með alþjóðlegar höfuðstöðvar í Royal Teton Ranch, Park County, Montana og námshópa og fræðslumiðstöðvar í stórborgum um allan heim. Hinir uppstignu meistarar og nemar þeirra útbreiða hia fornu visku til allra þjóða.

Markmið

Frá upphafi hefur Summit Lighthouse beitt sér fyrir þroskun ótakmarkaða meðfæddra andlegra hæfileika mannsins sem með framsækinni birtingu þeirra glæðir hugsjónir og skilning hans á kosmískum lögmálum. Summit Lighthouse leitast við að bæta mannlífið og leysa öll mannleg vandamál með hugsjónum sínum um að aðstoða einstaklinga og þjóðir við að birta innra gildi sitt og getu.

Trúarsetningar og þröngsýnar trúarskoðanir eiga það til að takmarka framfarir sálarinnar. Aftur á móti benda kenningar uppstignu meistaranna á sannleikann hvar sem hann er að finna. Þeir leggja áherslu á þátt skynseminnar og reglufestunnar sem og helgunarinnar í nálgun sinni á hinni andlegu leit. Í Ritum stór-meistaranna sem Summit Lighthouse gefur út er bent á þá staðreynd að ekkert gerist af tilviljun heldur gerist allt samkvæmt náttúrulegum og andlegum lögmálum sem oft geta birst eins og fyrir hendingu. Alheiminum var komið á laggirnar með lögmáli óendanleikans og óendanlegri visku. Jafnvel endanleg einkenni alheimsins sýna að vísindaleg nákvæmni býr á bak við birtingarmyndir hans.

Kenningar hinna uppstignu meistara standa öllum til boða sama hvaða menntun eða trúarlegan bakgrunn þeir hafa. Þær eru ætlaðar víðsýnum mönnum, þeim sem gera sér grein fyrir að háskóla- eða framhaldsskólapróf markar engan veginn endalok náms í skóla lífsins. Lífið er viðvarandi í eðli sínu, hefur göfugan ásetning og mikilvægan andlegan tilgang. Lífið er öllum mikill skóli og enginn skyldi voga sér að loka huganum fyrir leyndarmálum þess. Sjónhverfingar heimsins eru skjáir sem hylja raunveruleikann og leyna stórkostlegri hönnun hans, jafnvel fyrir þeim lærðustu. Maðurinn myndi ekki dirfast, ef honum væri frjálst að þekkja sannleikann, að leyfa sér að skýla sér á bak við kennisetningar sem standast ekki skoðun á meðan að siðmenningin riðar til falls þegar ekkert er að gert.

Heimsþjónusta

Siðmenntaður maður þarf ekki að rífa niður kerfi fortíðarinnar með ofbeldisfullri byltingu því hann er fær um að meta félagsleg vandamál og þróa lausnir án þess að eyðileggja þær undirstöður sem þarf til að styðja við breytingar á öllum sviðum lífsins. Með trú á eðlislægri getu mannsins til að lúta vilja skapara síns, getum við leitað betri skilnings á okkur sjálfum og á tilgangi tilvistar okkar (raison d'être) hér á jörðu.

Menn þurfa að treysta á jafnvægisviðleitnina sem náttúran hefur komið fyrir í sálarlífi mannsins. Að treysta á eigin næmni fyrir sannleikanum og veruleikanum mun hjálpa einstaklingnum að gera hreint fyrir sínum dyrum á dauðlegum blekkingum og losa vitundina við skerandi rugl sem deyfir heila og verund mannsins.

Við lifum á tímum þar sem fjölmiðlar eru oft háðir og ófrjálsir, menntun er stundum hlutdræg og fordómar eru áberandi á samfélagsmiðlum. Sérhver maður leitar hins góða lífs en sjaldan liggur fyrir hvað það felur í sér í raun og veru. Ill öfl eru staðráðin í að kollvarpa öllum trúarbrögðum, réttum eða röngum. Þau vilja nota váleg tíðindi og félagslegan óróleika sem yfirvarp til að kasta efasemdum á gildi þeirra. Menn eru tilbúnir að fyrirgera frelsi með því að leggja traust sitt á trúarlegar og stjórnmálalegar hreyfingar þar sem samviska einstaklingsins verður að lúta vilja gerræðislegra yfirboðara.

Mitt í þessum aldarróti rís Vitinn á tindinum sem andlegur turn til að halda loga undursamleikans, gleðinnar og trúarinnar lifandi að eilífu í hjörtum manna. Þetta eru reghlífarsamtök sem samanstendur af reglu uppstiginna meistara og óuppstiginna chela-nemum þeirra, þekkt undir heitinu Stóra hvíta bræðralagið. Uppstignu meistararnir hafa náð tökum á tíma og rúmi og stigið upp í hvítu ljósi í nærveru Guðs. Þeir hafa einatt hvatt til könnunar á veruleikanum og skilgreiningar á einstaklingsbundinni sjálfsstjórn frá upphafi siðmenningar.

Þessi andlega regla hefur staðið að baki hverri uppbyggilegri viðleitni sem nokkurn tíma hefur verið sett fram á jörðinni. Aðilar hennar hafa stofnað kirkjur, bræðralög, ríkisstjórnir, sjúkrahús, skóla og alls kyns góðgerðarstofnanir. Þeir hafa aðallega starfað á bak við tjöldin og hafa allra náðarsamlegast litið fram hjá ofbeldi, eigingirni og græðgi mannkynsins, alltaf leitast við að skipta út ringulreið fyrir göfug markmið og leitast virkt við að lyfta vitund mannkynsins með því að endurvekja trú mannsins á ódauðlegum örlögum hans sem sonar Guðs. Þessir óeigingjörnu þjónar hafa ekki leitað neinna persónulegra viðurkenninga fyrir verk sín. Þeir hafa samstillst nærveru lífsins í öllum mönnum eins og Jesú var opinberað og öðrum sem hafa verið sendir til að færa sannleiksljós til myrkraðs heims.

Frá stofnun sinni árið 1958 hefur The Summit Lighthouse verið „skýstólpi á daginn og eldstólpi á nóttunni til að lýsa þeim,“ sem leita sannleikans um innra sjálfið og þekkingar á alheimslögmálum og beitingu hans á einstaklings- og heimsvísu. Mitt í fjölþættri starfsemi hinna uppstignu meistara og útbreiðslu stofnunarinnar undir hæfri stjórn boðberanna hefur The Summit Lighthouse, með orðum Longfellow, verið áfram ...

Staðföst, kyrrlát, óhagganleg, sú sama
ár eftir ár, í gegnum alla hina kyrrlátu nótt
Brennur að eilífu sá óslökkvandi logi,
í skini óslökkvandi ljóss!

Tækifæri til að læra kenningarnar

Skipulagskröfur vaxandi hreyfingar hafa hinir uppstignu meistarar uppfyllt með stofnun Church Universal and Triumphant hinnar (Sigursælu alheimskirkju), Summit University (Háskólann á tindinum), Montessori International (Alþjóðlega Montessori-skólann), og opnun samfélagslegra kennslumiðstöðva um allan heim. En The Summit Lighthouse stendur sem máttugur turn á klettinum, tákn ljóss ÉG ER SÁ SEM ÉG ER og tinds í tilveru hvers og eins, hin nærtæka hjálp á erfiðleikatímum. Fyrir þúsundir hollustumanna sannleikans hefur The Summit Lighthouse staðið sem viti á tindinum sem lýsir í gegnum nóttina, og leiðbeint sálinni í höfn veruleikans.

Our standard is commitment to cosmic purpose and to the brotherhood of man under the fatherhood of God. Those whose loyalties are the same will find much in common with our service. All truth has its origin in universal law. The consciousness of man, as a repository of truth, provides opportunity for endless research. Those who study with us learn how they can overcome deep-seated limitations that, in some cases, from birth onward have prevented their manifestation of the full and rich life they were intended to enjoy.

Man is like a flower. His consciousness and body temple provide him with a platform for magnificent achievement. He is intended to blossom and to bear fruit. He is intended to pursue happiness while being harmless. He is intended to achieve, to overcome difficulties and limitations, and to rise to heights far above his present norm that he might benefit his fellowmen and set an example for the age.

If you are among those who keep an open mind and who are eager to learn new and scientific truths, keys that will unlock your full potential and free you from a sense of drudgery and frustration, if you are looking for a more effective means to help your family and friends and at the same time discover your inner Self, if you believe there is a purpose to life—that the spark was not intended to go out—then we invite you to take advantage of facts and findings that you may have never imagined could be true or possible.

Since 1958, The Summit Lighthouse has published the weekly letters of the ascended masters to their students throughout the world. Called Pearls of Wisdom, these letters are the intimate contact, heart to heart, between the Guru and the chela. They contain instruction on cosmic law, commentary on current conditions on earth, and whatever the hierarchy of the Great White Brotherhood deems necessary to the individual initiation of those who form a part of this great movement of lightbearers on earth.

The Keepers of the Flame Fraternity is a worthy body of men and women dedicated to self-improvement and the upliftment of humanity. Receipt of monthly lessons that provide graded instruction in cosmic law and the opportunity of attending special classes are among the many advantages of membership.

We welcome you to write or call us for further information about the activities of students of the ascended masters in your area. And we look forward to meeting you at our services and retreats.

See also

History of The Summit Lighthouse

Church Universal and Triumphant

Heimildir

1981 Pearls of Wisdom.