Translations:Saint Germain/59/is
Með árunum safnaði Bacon að sér höfundum allra helstu bókmenntaverka sem út komu á tímum Elísabetar drottningar. Sumir þeirra voru í „leynireglu“ sem hann kallaði "Hjálmsriddarana" („The Knights of the Helmet“). Þeir höfðu að markmiði að auka menntun og efla enska tungu með því að skapa nýja bókmenntahefð á móðurmálinu í stað latínu svo að allur almenningur gæti notið ritanna. Bacon ritstýrði einnig þýðingu á grundvallarbiblíunni ensku, Jakobsbiblíunni (King James Bible), staðráðinn í því að almenningur nyti góðs af því að geta lesið Guðs orð upp á eigin spýtur.