Translations:Body elemental/9/is
Hvort sem maðurinn viðurkennir tilvist náttúruveru líkamans og ábyrgð sína á að koma réttlátlega fram við þennan þjón eða ekki, tekur náttúrveran við skipunum sín frá honum og starfar samkvæmt vilja hans. Allar hugsanir og tilfinningar mannsins eru rafrænt yfirfærðar til náttúruverunnar og hún sýnir þær samstundis í frumum líkamsmusterisins. Þannig gerir maðurinn sjálfan sig oft veikan með því að veikja fyrst náttúruveru líkama hans. Hann þjálfar þjón sinn í að hugsa neikvætt og líða illa og þjónn hans hlýðir. Þó efasemdir og ótti mannsins lami náttúruveru líkamans algjörlega, þá losar jákvætt viðhorf mannsins til lífsins náttúruveruna til að koma á heilsu og bæta líðan hans.