Translations:Jophiel and Christine/15/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 20:19, 26 August 2024 by Hbraga (talk | contribs)

Þann 9. september, 1963, gaf Jófíel erkiengill út tilskipun sem leiddi til afhjúpunar á hættum tóbaks og skýrslu landlæknis Bandaríkjanna um skaðleg áhrif reykinga. Jófíel útskýrir fyrir þeim sem eru háðir reykingum að notkun níkótíns skapi drunga í heilanum sem kemur í veg fyrir að guðleg greind leiftri fram í gegnum móttökusvæði heilans. Þegar fólk gerir upp við reykingavenjuna kemst það að því að það eykur andlegt upplýsingastreymi til þess í gegnum heilann og miðtaugakerfið.