Translations:Body elemental/19/is
Ekki rugla saman ótta náttúruveru líkama þíns við þinn eigin. Náttúruvera líkamans er líka tengd líkamanum því það er hans iðja. Hann sér um líkamann. Án líkamans er hann iðjulaus! Því veltir hann fyrir sér hvert hann fer og hvað hann á að taka sér fyrir hendur þegar þú leggur líkamann til hliðar í síðustu endurfæðingu þinni. Þú verður að hugga náttúruveru líkama þíns eins og þú myndir hugga lítið barn og lofa honum að þú takir hann með þér upp á næsta áttundarsvið því hann hefur verið trúr og dyggur þjónn. Segðu honum að hann geti enn verið aðstoðarmaður þinn eftir að þú ert uppstiginn og hann mun hafa nóg fyrir stafni.