Translations:Etheric retreat/14/is
Ljósið sem er sent frá athvörfunum kastar taktfast fram og aftur rafsegulbylgjum á milli þeirra. Árangurinn af samspili þessara ljósbylgna er ómun kosmísks tóns, hljóðs hins mikla Amen, AUM, eða ÓM, sem heyrist með innra eyranu. Þessi kosmíski grunntónn baðar jörðina, náttúruríkið og mannkynið í titringi hins heilaga sköpunarorðs sem þýðir bókstaflega „ÉG ER“ eða „Guð er hið mikla Amen“. Af þessu vitum við að sérhver maður getur orðið eitt með sveiflutíðni hins týnda Orðs.