Translations:Violet flame/13/is
Fjólublái loginn hefur ávallt verið notaður í athvörfum uppstignu meistara Stóra hvíta bræðralagsins á ljósvakasviðinu (etheric plane) á hæsta og fíngerðasta efnissviðinu. Þar taka þeir aðeins við verðugustu chela-nemunum í ljósvakalíkama sínum til leiðbeiningar og þjálfunar og öðlast þeir jafnframt þekkingu á fjólubláa loganum. Á meðal þeirra má finna átrúendur allra trúarbragða, félaga í leynireglum, vígsluþega hins helga elds í dulspekiskólum og alla þá sem hafa sýnt sig vera ósíngjarna viðtakendur og veitendur frelsisins á hinum andlega vegi til frelsunar sálarinnar.