Translations:Hilarion/11/is
Oft leið mér eins og hendur og fætur og hjarta Herkúlesar sem glímdi við niðursveiflur jarðar vegna trúleysis, efahyggju, vitsmunalegs drambs þeirra [guðlausu] og heift gegn spámönnunum og hinum heilaga Guðs [syni] sem svo nýlega kom á meðal okkar. Samt sem áður minnist ég þess að ég var einu sinni talinn meðal þeirra. Að hafa einu sinni verið svo drambsamur og svo harðsnúinn gegn vilja Guðs myndi að eilífu brenna í minningu minni það hjálparleysi sem við höfum öll sem verkfæri Guðs. En hinn mikli styrkur Orðsins kemur, ástvinir mínir, á stundu afturhvarfsins til trúarinnar. Það er ekki stund kallsins, heldur stund umsnúningsins þegar kemur svar úr djúpi sálarinnar. Það er flæðið, það er það að gefa, það er þessi uppgjöf. ...