Translations:Sarasvati/5/is
Sarasvati er þekkt sem gyðja Orðsins. Hún er tengd Vac, Orðinu. Hún táknar mælsku og miðlar visku Lögmálsins. Hún er móðir-kennari þeirra okkar sem dásömum Lögmálið sem Brahma opinberaði og hún er kraftur viljans, viljinn og hvatinn til að vera Lögmálið í verki. Sarasvati táknar sameiningu krafts og greindar sem skipulögð sköpun sprettur upp úr.