Translations:Christ/9/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 20:55, 31 March 2024 by Hbraga (talk | contribs)

Hugtakið „Kristur“ eða „hinn Krists-borni (endurfæddi í Kristi)“ táknar einnig embætti í helgivaldinu sem þeir hljóta sem hafa náð sjálfs-leikni, -færni og -stjórnun á sjö geislum og sjö orkustöðum heilags anda. Heilagans anda. Krists-stjórn felur í sér að jafna þrígreinda logan – hina guðlegu eiginleika máttar, visku og kærleika – fyrir samhæfingu vitundarinnar og hafa á höndum stjórnun geislanna sjö í orkustöðvunum og í fjórum lægri líkömunum í gegnum Móður-logann (örvun slöngukraftsins Kundalini). Á þeirri stundu þegar skilyrðunum til uppstigningar hefur verið fullnægt lyftir hin smurða sál upp þyrilvafning hins þrígreinda loga undir fótunum í gegnum allan líkamann til að umbreyta sérhverri frumeind og frumu verundar sinnar, vitundar og heims. Mettun og hröðun fjögurra lægri líkamana og sálarinnar með þessu ummyndandi ljósi Kristslogans á sér stað að hluta til í vígslu ummyndunarinnar, eykst í gegnum upprisuna og öðlast fullan styrkleiki í helgisiði uppstigningararinnar.