Kort af guðlegu sjálfi þínu

From TSL Encyclopedia
Revision as of 13:45, 16 April 2024 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "Móðurgyðjan beinir orku sinni innra með okkur í gegnum hinn helga guðlega eld sem rís upp sem ljósbrunnur í gegnum orkustöðvar okkar. Orkustöð (sanskr. chakra) er andleg miðstöð í ljósvakalíkamanum. Hver orkustöð stjórnar orkuflæðinu til annarra hluta líkamans. Sjö helstu orkustöðvarnar eru staðsettar meðfram mænunni, frá rót hennar til hvirfilsins.")
caption
Kort af guðlegu sjálfi þínu

Þú átt þér einstakt andlegt hlutskipti. Einn af lyklunum til að uppfylla það hlutskipti er að skilja guðdómlegt eðli þitt og samband þitt við Guð. Til að hjálpa þér að skilja þetta samband hafa uppstignu meistararnir hannað Kortið af guðlegu sjálfi þínu sem þeir vísa einnig til sem lífsins trés. Kortið er mynd af þér og Guði innra með þér, skýringarmynd af sjálfum þér – í fortíð, nútíð og framtíð.

Efri veran

Kortið af guðlegu sjálfi þínu hefur þrjár myndskýringar sem samsvara þrenningunni og móðurgyðjunni. Efri myndin samsvarar föðurnum (sem er eitt með móðurgyðjunni) og táknar [[ÉG ERnærveru þína.]] Ég ER-nærveran er einstök návist Guðs fyrir hvert og eitt okkar. ÉG ER SÁ SEM ÉG ER, nafn Guðs sem opinberaðist Móse á Sínaífjalli, er hið einstaklingsbundna (einstaka) guðlega auðkenni þitt.

Ég ER-nærvera þín er umlukin sjö sammiðja regnbogalituðum ljóshvelum sem mynda orsakalíkama þinn. Svið orsakalíkamans er uppsafnaður forði alls þess sem er raunverulegt og varanlegt í þér. Þessi aðföng innihalda skrárnar af dyggðugum athöfnum og verkum sem þú hefur framið Guði til dýrðar og blessunar mannsins í gegnum margar endurholdganir þínar og æviskeið á jörðu.

Engir tveir orsakalíkamar eru nákvæmlega eins vegna þess að glitrandi ljóshvel þeirra endurspegla hinn einstaka andlega árangur sálarinnar. Sérstakir eiginleikar sem þú hefur þroskað í fyrri lífum ákvarða gáfur og hæfileika sem þú fæðist með í síðari lífum þínum. Þessir hæfileikar eru innsiglaðir í orsakalíkama þínum og verða þér aðgengilegir í gegnum æðra sjálf þitt.

Veran í miðjunni

Æðra sjálfi þínu, eða heilögu Krists-sjálfinu, er lýst í miðjumynd á Kortinu af guðlegu sjálfi þínu. Hið heilaga Krists-sjálf þitt er innri kennari þinn, verndari og kærasti vinur. Það er einnig rödd samviskunnar sem talar í hjarta þínu og sál. Það greinir á milli góðs og ills innra með þér og kennir þér að greina rétt frá röngu. Rétt fyrir ofan höfuð hins heilaga Krists-sjálfs er dúfa heilags anda sýnd stígur niður í blessun Guðs föður og móður.

Lægri veran

Lægri skýringarmyndin á kortinu táknar sál þína. Sál þín er hjúpuð fjórum mismunandi „líkömum“ sem kallast fjórir lægri líkamarnir: (1) ljósvakalíkaminn, (2) huglíkaminn, (3) löngunarlíkaminn og (4) efnislíkaminn. Þetta eru farartæki sálar þinnar sem hún notar í vegferð sinni í jarðlífinu.

Ljósvakalíkami þinn, einnig kallaður minnislíkaminn, rúmar frumdrög sjálfsmyndar þinnar, auðkenni þitt. Hann hefur einnig að geyma minni um allt sem hefur nokkru sinni hrærst í sálu þinni og allar hvatir, kenndir og áhrif sem hafa nokkru sinni leikið um sál þína síðan þú varst skapaður. Huglíkami þinn er verkfæri vitsmuna þinna. Þegar hann hefur verið hreinsaður getur hann orðið verkfæri fyrir huga Guðs.

Löngunarlíkaminn, einnig kallaður geðlíkaminn, hýsir æðri og lægri langanir þínar og skráir tilfinningar þínar. Efnislíkami þinn er holdi og blóði klætt kraftaverk sem gerir sál þinni kleift að taka framförum í efnisheiminum.

Lægri skýringarmyndin á kortinu samsvarar heilögum anda því að sál þinni og fjórum lægri líkömum er ætlað að vera musteri heilags anda. Lægri myndin er umvafin fjólubláa loganum – hinum umbreytandi, andlega eldi heilags anda. Þú getur daglega kallað fram fjólubláa logann til að hreinsa fjóra lægri líkama þína og afmá niðurbrjótandi hugsanir, niðurbrjótandi tilfinningar og niðurbrjótandi karma.

Umhverfis fjólubláa logann er ljóssúlan sem stígur niður frá ÉG ER-nærveru þinni sem svar við ákalli þínu. Það er hvít ljóssúla sem heldur uppi verndandi kraftsviði í kringum þig alla tíma sólarhringsins, svo framarlega sem þú ert í jafnvægi.

Móðurgyðjan beinir orku sinni innra með okkur í gegnum hinn helga guðlega eld sem rís upp sem ljósbrunnur í gegnum orkustöðvar okkar. Orkustöð (sanskr. chakra) er andleg miðstöð í ljósvakalíkamanum. Hver orkustöð stjórnar orkuflæðinu til annarra hluta líkamans. Sjö helstu orkustöðvarnar eru staðsettar meðfram mænunni, frá rót hennar til hvirfilsins.

Silfurþráðurinn

Aðalgrein: Silfurþráðurinn

Rétt fyrir ofan höfuð hins heilaga Krists-sjálfs er dúfa heilags anda sýnd stígur niður í blessun Guðs föður og móður.

Hvíta ljóssúlan sem gengur niður frá ÉG ER-nærverunni í gegnum hið heilaga Krists-sjálf til lægri myndarinnar á kortinu er kristalstrengur. Í Prédikaranum er þetta nefnt silfurstrengurinn (Pd 12.6). Í gegnum þennan „naflastreng“ flæðir útstreymi ljóss Guðs, lífs og vitundar. Þessi lífsstraumur gerir þér kleift að hugsa, kenna og finna til, rökræða, upplifa lífið og vaxa andlega.

Orkan úr kristalsnúrunni þinni nærir og viðheldur loga Guðs sem er falinn í leynihólfi hjartans. Þessi logi er kallaður þrígreindur logi eða guðlegur neisti. Hann er bókstaflega neisti af helgum eldi frá hjarta Guðs sjálfs.

Þrígreindi loginn hefur þrjá „skúfa“. Þessir skúfar fela í sér þrjá aðaleiginleika Guðs og svara til þrenningarinnar. Hvíti eldkjarninn sem er uppspretta þrígreinda logans táknar móðurgyðjuna.

Þegar þú sérð í hugskotssjónum þínum hinn þrígreinda loga innra með þér, virtu þá fyrir þér bláa skúfinn á vinstri hönd. Hann felur í sér kraft Guðs og svarar til föðurins. Guli skúfurinn, í miðjunni, inniheldur visku Guðs og samsvarar syninum. Hinn rauðguli skúfur, hægra megin, felur í sér kærleika Guðs og samsvarar heilögum anda. Með því að fá aðgang að krafti, visku og kærleika sem er rótfest í þrígreinda loganum þínum getur þú uppfyllt tilganginn með lífi þínu sem réttlætir tilveru þína.

Þróun sálarinnar

When your soul concludes a lifetime on earth, the I AM Presence withdraws the silver cord, whereupon your threefold flame returns to the heart of your Holy Christ Self. Your soul, clothed in her etheric garment, gravitates to the highest level of consciousness to which she has attained in all of her past incarnations. Between embodiments she is schooled in the etheric retreats until her final incarnation when the great law decrees she shall return to the Great God Source to go out no more.

Your soul is the nonpermanent aspect of your being, which you make permanent through the ascension process. By this process your soul balances her karma, bonds to your Holy Christ Self, fulfills her divine plan and returns at last to the living Presence of the I AM THAT I AM. Thus the cycles of her going out into the Matter Cosmos are completed. In attaining union with God she has become the Incorruptible One, a permanent atom in the Body of God. The Chart of Your Divine Self is therefore a diagram of yourself—past, present and future.

Heimildir

Kuthumi and Djwal Kul, The Human Aura: How to Activate and Energize Your Aura and Chakras.