Efnislíkaminn
Þéttasti hinna fjögurra lægri líkama mannsins, sem samsvarar frumþætti (höfuðskepnu) jarðar og síðasti fjórðungur efnisins; líkaminn er starfstæki sálarinnar fyrir dvöl sína á jörðinni og brennidepillinn fyrir kristöllun orku ljósvakalíkamans, huglíkamans og geðlíkamans í efnisforminu.
Efnislíkaminn er í brennidepli samþættingar fyrir sálina sem er í þróun og verður að öðlast frelsi sitt og sjálfs-stjórn í áttund efnisvíddarinnar. Hinar sjö megin ljósorkustöðvar ásamt þeirri áttundu eru jarðtengdar í þremur lægri líkömunum; þessir ásamt þrígreinda loganum í leynihólfi hjartans og sæðiseindinni sem og Kúndalíni (lífskrafturinn) í mænurótar-orkustöðinni — eru miðstöðvar hins andlega elds og víxlun á æðri og lægri orku í þeim tilgangi að andlegri vakningu, umbreytingu og útstreymi ljóss, eða Krists-vitundarinnar, til jarðkúlunnar.
Þó að hver hinna fjögurra lægri líkama hafi mörg stig af meðvitund (meðvitund, undirmeðvitund og yfirmeðvitund), "mynd þess fjórða er eins og sonur Guðs,"[1] eins og undrandi Nebúkadnesar sá. Eterlíkaminn, sem er líkastur Krists sjálfinu, endurspeglast í hinu líkamlega. En myndin er ekki alltaf skýr, þar sem hún er vandræðaleg og gruggug með skráningu og karma hugar- og tilfinningalíkama (astrallíkama). Þetta stöðva hreina pólun elds- og jarðarþáttanna sem er náttúrulega á milli eterískrar teikningar og efnislegs forms.
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lost Teachings on Your Higher Self.
- ↑ Dan. 3:25