Ljósvakalíkaminn

From TSL Encyclopedia
Revision as of 16:52, 3 May 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:

Einn af fjórum lægri líkömum mannsins sem samsvarar frumþætti eldsins og fyrsta fjórðungi efnisins; kallaður umgjörð sálarinnar sem geymir frumdrætti hinnar guðlegu ráðagerðar og ímynd Krists-fullkomnunar sem á að útmála í heimi formsins. Einnig kallaður minnislíkami.

Ljósvakalíkaminn hefur hæstu orkutíðni hinna fjögurra lægri líkama. Hann inniheldur skrár bæði um tilvist sálar þinnar á himni ofan (vistaðar í orsakalíkamanum og Krists-huganum) og reynslu sálar þinnar í jarðvist hér að neðan (vistuð í undirvitund þinni, í umgjörð geðsviðsins og í hinu lægra rafræna belti).

Hvert sem athafnasvið þitt er þá inniheldur minnislíkaminn Tablets of Mem - rafrænar, tölvutækar upptökur af öllum orkusveiflum og orkuboðum sem þú hefur sent frá þér í gegnum sál þína og æðri og lægri starfstæki hennar. Þessi lífsskrá er skráð á óteljandi ljósskífur sem samanstanda af breytilegum þróandi, sjálfsmyndamynstri sálarinnar sem rennur saman við andann. Það er þessi lífsskrá (L-svæðið) sem ákvarðar mynstrin sem útmálast í þremur lægri starfstækjunum - hugllíkamanum, geðlíkamanum og efnislíkamanum. (Aðeins fjólublái loginn getur varanlega breytt áhrifunum með því að umbreyta orsökinni rækilega.)

Sanat Kumara tilkynnti á nýársdag 1985 að jörðin hafi fengið nýtt eterískt slíður sem inniheldur heimildir og teikningu af upprunalegu guðlegu áætlun plánetunnar og að tækifæri fyrir heiminn til að endurnýja gullöld hefði aldrei verið meiri.[1]

Sjá einnig

Fjórir lægri líkamar

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lost Teachings on Your Higher Self.

  1. Sanat Kumara, „The Turning Point of Life on Earth: A Dispensation of the Solar Logoi,“ Pearls of Wisdom, 28. bindi, nr. 6.