Amen Bey

From TSL Encyclopedia
Revision as of 10:31, 10 May 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:

Amen Bey hefur endurfæðst mörgum sinnum í Egyptalandi þar sem hann var faraó sem hafði áhrif á menningu landsins í samræmi við meginreglur uppstiginna meistaranna. Hann var prestur hins helga elds á Atlantis og hann vinnur náið með Serapis Bey sem bróðir í hofinu í Lúxor. Rafrænt mynstur hans er djúpblátt egypskt myndletlur sem inniheldur hugmyndina um andlega endurfæðingu hins Krists-borna manns.

Tvíburalogi Amen Bey er Clara Louise Kieninger sem gegnir stöðu Móður-logans. Amen Bey og Clara Louise helga sér að aðstoða æsku heimsins. Þegar þú kallar til þeirra beggja færðu öflugan stuðning Alfa og Ómega sem þau einbeita sér að. Þú getur beðið til þeirra um að aðstoða þig við að hjálpa foreldrum og börnum þeirra og þau munu ryðja brautina í andlegu starfi fyrir hönd ungs fólks í heiminum.

Amen Bey heldur um þessar mundir námskeið um kosmísk lögmál í Royal Teton athvarfinu á ljósvakasviðinu. Hann getur aðstoðað þig við undirbúning fyrir uppstigninguna og læknað sár þín. Hann segir:

ÉG ER Amen Bey, bróðir þinn á leiðinni. Ég kem með lækningu í gegnum heilagan eld í musteri þínu. Ég beini nálargeislum inn í hverja frumu og frumeindir í fjórum neðri líkamanum til jafnvægis og lækninga.[1]

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Amen Bey”.

  1. Amen Bey, „An Ancient Temple of Luxor,“ Pearls of Wisdom, 34. bindi, nr. 29, 27. júní, 1991 .