Translations:Cherub/5/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 09:09, 21 May 2024 by Hbraga (talk | contribs)

Í musteri Salómons í Jerúsalem voru veggirnir þaktir útskornum kerúbum. Í riti Esekíels er skráð sýn Esekíels af fjórum kerúbum:

"Ég sá, og sjá: Stormvindur kom úr norðri og ský mikið og eldur, sem hnyklaðist saman, og stóð af því bjarmi umhverfis, og út úr honum sást eitthvað sem glóði eins og lýsigull. Út úr honum sáust myndir af fjórum verum. Og þetta var útlit þeirra: Mannsmynd var á þeim."[1]

Esekíel lýsir því að hver kerúbi hafi fjögur andlit, fjóra vængi og klaufir líkt og á kálfum. Hann sagði: Milli veranna var að sjá sem eldsglæður brynnu. Það var eins ogblys færu aftur og fram milli veranna, og bjarma lagði af eldinum og út frá eldinum gengu leiftur.[2]

  1. Esek. 1:4-5.
  2. Esek. 1:13