Translations:Saint Germain/10/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 11:00, 23 May 2024 by Hbraga (talk | contribs)

„Ég er uppstigin vera, en svo hefur ekki ávallt verið. Ekki aðeins einu sinni eða tvisvar heldur ótalmörg jarðvistarskeið hef ég gengið um grundu eins og þið gerið nú, bundinn í klafa mennskrar tilveru og háður tíma og rúmi. Ég var uppi á Lemúríu og Atlantis. Ég hef séð siðmenningarveldi myndast og ég hef séð þau líða undir lok. Ég hef séð vitundarþroska mannsins ganga í bylgjum meðan mannkyni færist á milli ólíkra menningarskeiða gullaldar og frumstæðra tímabila. Ég hef séð valkostina sem mannkyninu hafa boðist, og ég hef séð mannkynið velja ranga kostinn og sóa þannig gegndarlaust árangri vísindalegra framfara til hundraða þúsunda ára. Með röngu vali hefur mannkynið stundum glatað andlegum þroska á hærra stigi en þeim sem hefur náðst með ástundun þróuðustu trúarbragða nútímans.