Translations:Saint Germain/13/is
Ég er Saint Germain, og ég er kominn til að gera tilkall til sálar ykkar og til eldsins sem brennur í brjósti ykkar fyrir sigur vatnsbera-aldarinnar. Ég hef markað brautina fyrir vígslu sálar ykkar. ... Ég hef boðskap. ... Það er frelsisboðskapur, boðskapur um tækifæri til að rísa upp og verða í raun það sem ykkur, eins og stjörnun-um, er ætlað að verða. Ég vil leiðbeina ykkur við að hrinda í verk guðlegri forsjón ykkar. Ég kem til ykkar og ég tala í hjarta ykkar. ... Ég er á braut frelsisins. Gangið þann veg og þar finnið þið mig. Ég skal gerast leiðbeinandi ykkar ef þið viljið taka á móti mér.“ [1]
- ↑ Saint Germain: "Ég hef valið mér að vera frjáls." Pearls of Wisdom, 18. bindi, nr. 30.