Translations:Saint Germain/47/is
Vísindaleg og heimspekileg heimssýn hans, djörf gagnrýni á guðfræðinga samtímans, og rannsóknir á alkemíu og stjörnuspeki urðu til þess að hann var ásakaður um „villutrú og nýjungagirni“. Af þessum sökum hneppti munkaregla Bacons hann í prísund í fjórtán ár. Í augum fylgismanna sinna var hann á hinn bóginn „doctor mirabilis“ (frábær kennari) og hefur það viðurnefni fylgt honum öldum saman.