Translations:Himalaya/7/is
Himalaya er meistari meistaranna. Nemendur hans hafa verið drottinn Gátama, drottinn Maitreya, El Morya, Kúthúmi og þúsundir annarra. Hann kennir hugleiðslu á meðan hann situr í lótusstöðu. Þeir sem njóta þeirra forréttinda að sitja við fætur hans verða að læra að samstilla vitund sína við hans og þegar púls þeirra verður eitt með takti hins þrígreinda loga hans eru þeir móttækilegir fyrir hugmyndum úr huga hans þó að engin orð séu látin falla. Þeir sem ná tökum á hugsanaflutningslistinni yfirgefa alltaf Bláa Lótus musterið með hjörtun full af kærlei og með möntru sem veitir lykilinn að framgangi guðlegrar ráðagerðar þeirra.