Translations:False gurus/10/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 15:07, 11 July 2024 by Hbraga (talk | contribs)
  • Hænir chela-nemann að sjálfum sér í síngjörnum tilgangi með ýmsum aðferðum eins og tantrískri vígslu eða með þvingaðri hækkun á Kúndalíni-slöngukraftinum áður en neminn hefur náð ákveðinni sjálfsfærni og jafnvægi með því að jafna karma sitt.
  • Leiðir bæði karlkyns og kvenkyns nýnema með kynferðislegum helgisiðum, leynilegum möntru-þulum til meintrar yfirfærslu yfirnáttúrulegra krafta eða með svokallaðri vígslu og stuðlar þar með að tilfinningalegri bindingu eða andlegri ánetjun nemans við sig sjálfan (gúrúinn).
  • Notar fornar hefðir, tungumál og arfleifðir til að táldraga nemann þar sem falsgúrúinn gerir tilkall til lögmætis með tengslum við meinta rakningu til hinna uppstignu meistara, Gátama Búddha, Maitreya og Sanat Kumara auk verklegrar nemaþjálfunar í því að öðlast yfirnáttúrulega siddhi-krafta, skaðlegri misnotkun möntru-þula (svartagaldri) með því að særa náttúruanda til að ná dutlungafullri stjórnun á náttúruöflum til að vinna óvinum mein eða þeim sem eru gegn galdramanninum eða hafa áhrif á einlægan, trúfastan nema til að fylgja boðum falsgúrúsins.
  • Að hvetja nema til að hugleiða mynd af gúrúinum og fara jafnfram með leynilega möntru gúrúsins: Í stað þess að þessi iðkun færi chela-nemanum ljós leiðir það til þess að falsgúrúinn, sem hefur ekkert eigið ljós, tekur í raun ljós frá chela-nemum sínum.
  • Ánetjandi klæðnaðar, mataræði, skynhelgi og hugleiðsla til að öðlast frið, krafta og ávinning (þar á meðal fjárhagslegan) í eigin þágu án þess að miða við markmið heimsþjónustunnar. Þetta leiðir allt til eigingjarnrar naflaskoðunar - fölsun á vegi Jesú Krists og lærisveina hans sem uppstignu meistararnir kenna - sem aðskilur leitendur frá hinu volduga verki aldanna: björgun sálna og plánetu í neyð með fullri þátttöku í efnahagslegum og pólitískum áskorunum sjálfsstjórnar og sjálfsákvörðunarréttar einstaklingsins til efnahagslegrar og andlegrar framþróunar með stórfengilegri tilraun í beitingu hins frjálsa Guðs-vilja.