Translations:Holy Spirit/3/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 11:01, 24 July 2024 by Hbraga (talk | contribs)

Logi heilags anda er huggarinn sem Jesús lofaði að myndi koma eftir að Drottinn yfirgaf okkur (hóf himnaför sína). Hann mun kenna okkur allt og minna okkur á allt það sem Jesús hefur sagt okkur bæði á himni og jörðu.[1] Í hvert sinn sem sonur eða dóttir Guðs stígur upp í nærveru ÉG ER SEM ÉG ER, stígur Heilagur andi niður til að fylla upp í tómarúmið sem myndaðist og til að efla nærveru Drottins á jörðu. Þetta helgast af niðurstigningu heilags anda sem Jesús lofaði lærisveinum sínum þegar meistarinn sagði: „ ... verið þér kyrrir í borginni, uns þér íklæðist krafti frá hæðum,“[2] sem átti sér stað á hvítasunnunni.[3]

  1. Jóhannes 14:16, 26; 16:7.
  2. Lúkas 24:49, 51.
  3. Postulasagan 2:1–4.