Translations:Spoken Word/8/is
Fullyrðing (assertion) og árétting um að eitthvað sé til staðar eða sé satt og rétt; staðfesting eða fullgilding sannleikans; hátíðleg yfirlýsing. Uppbyggileg yfirlýsing sem venjulega hefst á nafni Guðs, "ÉG ER," sem staðfesta og styrkja eiginleika Guðs innra með manni sjálfum, að sannleikur er að verki í manninum — í verund hans, vitund og heimi. Slíkar yfirlýsingar stuðla að því að þessir eiginleikar rætist. Staðfestingar eru tilskipanir sem geta verið í lengra lagi og útlistaðar í smáatriðum. Þær eru notaðar á víxl við afneitanir á tilvist hins illa í allri sinni mynd. Á sama hátt staðfesta þær mátt sannleikans til að sigrast á niðurrifsöflunum.