Translations:Djwal Kul/8/is
Kúthúmi kennir ásamt Djwal Kúl fræðin um mannsáruna. Hann gaf okkur hugleiðsluna um leynihólf hjartans og hann er einn af meisturunum sem vígja okkur inn í innra musterið, leynihólf hjartans, á vegi kærleikans. Hann hefur komið fram með öndunaræfingu til að samtvinna fjóra lægri hluta líkamans sem er að finna í bókinni Studies of the Human Aura (Fræðin um mannsáruna). Hann kennir einnig æðri stjörnuspeki hinna uppstignu meistara — tólf línur hinnar kosmísku klukku (sólskífu) fyrir hinar tólf vígslubrautir undir tólf helgivöldum sólarinnar. Hann kennir okkur hvernig á að kalla fram logann til að höndla stjörnuspá dagsins sem er vort daglega karma. Unnt er að hitta fyrir og ná tökum á karma okkar frá einum degi til annars — öllu því góða og slæma — sem verður á vegi okkar á þessum tólf leiðum og tólf logum.