Translations:Nada/29/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 13:45, 12 December 2024 by Hbraga (talk | contribs)

Nada kennir við athvarf Jesú á ljósvakaáttundunni uppi yfir Sádi-Arabíu þar sem hún kennir hvernig við náum guðlegri stjórn á tilfinningum og stillum óhóflegar langanir. Þetta gefur vald á sólar-plexus orkustöðinni sem er starfstæki fyrir sjötta geislann, staðurinn þar sem maður geislar frá sér friðsemd. Þetta er geisli fiskamerkisins og Jesús er hinn mikli meistari þessa geisla – hann er friðarhöfðinginn. Nada fetar í fótspor Jesú Krists og það er vegur hans sem hún kennir. Hún tók við af honum embætti chohan-meistara af sjötta geisla þegar hann tók við embætti heimskennara árið 1956.