Sálufélagi

From TSL Encyclopedia
Revision as of 00:07, 17 December 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:

Sálufélagi er samkvæmt orðanna hljóðan: Það er félagi sálarinnar. Sálin er eitthvað alveg aðskilin frá hvítum eldlíkamanum, hvítum eldkjarna ÉG ER-Nærverunnar. Svo hugtakið „sálufélagi“ tengist sameiginlegri þjónustu og köllun á vegferðinni sem maðir gæti sinnt með einhverjum öðrum en tvíburaloganum.

Skilgreiningin á sálufélaga er sá sem þú ert að vinna með að verkefni sem er hluti af því að uppfylla kröfur um að öðlast stjórn á einni af sjö orkustöðvunum. Nánar tiltekið, sálufélagi þinn væri sá sem þú ert að vinna með að því að beina orku Alfa og Ómega í ákveðna orkustöð, og tilsaman sameinið þið krafta ykkar til að mynda guðlega heild þessarar orkustöðvar.

Þegar þú finnur manneskju sem þú passar vel saman við til að inna af hendi göfugt verk, þá er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að jafnvel þótt það sé sálufélagssamband, þá þýðir það ekki að það sé sjálfkrafa tilskipun frá lífinu eða frá forlögunum um að því sé ætlað að vera ástarsamband. Maður getur lokið verkefninu og verið tilbúinn fyrir næstu vígslu í næstu orkustöð sem felur í sér alveg nýjan vinahóp og kannski annan sálufélaga.

Tengsl sálufélaga skapa góð bróður/systursambönd, góð fjölskyldutengsl og góð hjónabönd. Þessi sambönd hafa eiginleika sálarspeglunar; ákveðinn þátt fullnægingar er að finna. Reyndar gætirðu verið miklu líkari sálufélaga þínum en tvíburaloga þínum. Þó að þú værir andstæða tvíburalogans þíns, gætir þú verið hliðstæða sálufélaga þíns. Þetta skapar hamingjusöm, samfelld, frjósöm sambönd.

Eitt mesta afrek allra tíma gerðu hjón sem voru ekki tvíburalogar en þeirra eigin tvíburalogar voru stignir upp til himna og því fær um að aðstoða þau við verkefni sín. María guðsmóðir og heilagur Jósef, útnefnd af Guði til að ala önn fyrir Kristi, nutu aðstoðar Rafaels erkiengils, hinnar guðlegu uppfyllingar (maka) Maríu, og ástkærrar Porsju, gyðju réttlætisins, uppfyllingar (maka) Saint Germains (sem endurfæddist sem Jósef).

Their lives are living proof of the fact that souls who come together dedicated in service to God and to the bringing forth of the Divine Manchild can succeed with the help of their twin flames. This help, when invoked, is always forthcoming from the God Presence of their twin flames, even though their twin flames may not yet be ascended.

Sjá einnig

Tvíbluralogi

Til frekari upplýsinga

Elizabeth Clare Prophet, Soul Mates and Twin Flames: The Spiritual Dimension of Love and Relationships.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path to Attainment, 1. kafli, “Twin Rays.”

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path to Attainment, 1. kafli, “Twin Rays.”