Andi jólanna
Andi jólanna er voldug ljósvera af háum búddhískum stigum. Lanelló talar um þessa miklu veru og ljósið sem hún ber:
Sá sem er þekktur sem andi jólanna er því kominn til að segja frá fæðingu Jesú Krists á bakgrunni myrkustu stundar náttúrunnar á árinu. Tilkynningin við vetrarsólstöður um að stjarnan hans birtist er mikið alheimssjónarspil; og það er hér til að kenna okkur að í dimmustu nóttum mennskrar þrár birtist stjarna vonarinnar og fæðing frelsarans.
Ég kem í anda jólanna svo að þið getið skilið að það er algjörlega kleift fyrir fleiri en einn son Guðs að eiga hlut í heilögu embætti, að gegna hinum guðlega ásetningi á beygðum kvisti, alveg á punktinum, miðpunkti kvarskristals sem nær yfir heim brennandi ásetnings. Hjartkæru vinir, ég kem því sem andi jólanna, þar sem þið getið séð fyrir komu þess sem er þekktur sem jólasveinninn.
Minnist hjartafylgsni barns — barnsins ykkar, ykkar sjálfs — sem hugsar um komu jólasveinsins og hvernig hann kæmi inn í húsið og hvernig þið mynduð skilja eftir smákökur og mjólk og jafnvel snarl handa hreindýrunum. Minnist hvernig þið, í fullri trú, vegna þess að foreldrar ykkar höfðu sagt ykkur, gengust inn í anda jólasveinsins. Og munið líka vonbrigðin við að komast að snoðum um að jólasveinninn var ekki raunverulegur.
En þetta er ekki satt! Jólasveinninn er raunverulegur. Og ég er hér til að segja ykkur að jólasveinninn sjálfur er dæmigert kerald fyrir anda jólanna, sá sem felur í sér þessa nærveru sem ég hef gengið inn í.
Það er rangt að segja börnum að jólasveinninn sé ekki raunverulegur. Það er rétt að útskýra fyrir þeim að andi jólanna er sannarlega manneskja — manneskja sem er raunveruleg í Guði, manneskja sem er kosmísk vera, sem fyllir hjörtu fólksins með eftirvæntingu eftir allra stærstu gjöfinni, gjöf persónulegrar Krists-hyggju.
Það sem gleður börn — leikir og leikföng og hlutir og glingur í sokkum — hjartkæru vinir, upphaflega gjafir sem gefnar voru hverju hjartans barni var ætlað að auka skynjun og skilning barnsins á persónu Krists. Þegar þið hugsið um gjafirnar sem gefnar eru þessa dagana, áttið þið ykkur á því að sumar gjafir veita einstaklingnum meiri sjálfsmynd á meðan aðrar hampa ytri mannninum og hafa tilhneigingu til að skapa meiri maya-tálsýn skurðgoðadýrkunar. Og þannig, með því að leggja áherslu og veita hinu ytra sjállfi athygli, missir einstaklingurinn af frábæru tækifæri þessarar stundar til að ganga sannarlega inn í hjarta þeirrar kosmísku veru sem er þekkt sem andi jólanna.
Therefore, beloved ones, understand that this Spirit embodies the collective consciousness of Christhood of the entire Spirit of the Great White Brotherhood—of all ascended beings and angels and masters, cosmic hosts of the LORD who are that Christ. Let us realize, then, that in all symbols there is Reality; in archetypes there is the original pattern of the image made perfect out of Christ; and in Santa Claus himself is the lingering hope in all that the figure of the Cosmic Christ will come to bring the true joy, the joy of the heart filled with love.[1]
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “The Spirit of Christmas”.
- ↑ Lanello, “The Spirit of Christmas,” Pearls of Wisdom, vol. 25, no. 68.