Translations:Hercules and Amazonia/8/is
Elóhíminn Herkúles er árþúsundum eldri en grísk goðafræði. Þegar Guð bauð að þetta sólkerfi yrði myndað, kom tilskipunin: „Verði ljós,“ og það varð ljós. Það var Herkúles sem kallaði saman hina voldugu elóhíma, formsmiðina, til að koma fram og hrinda guðdómlegri áætlun Sól-logosins í framkvæmd. Mikill styrkur hans er sóttur í kærleikríka hlýðni hans við vilja Guðs. Hann leysir úr læðingi bláa leifturvernd og uppsafnaðan slagkraft sinn í vilja-krafts aðgerðum sem svar við kalli mannkyns um styrk og stefnu.