Translations:Angel of the Revelation of John the Divine/5/is
Ég kem með viðvörun og ég kem með uppörvun. Látið þá viðvörunina vera sálum, sem eru af Guði, um að það eru hinir föllnu sem hafa síast inn í raðir ykkar, sem hafa farið á meðal ykkar. Það eru þeir sem eru falskristar og falsspámenn, og þeir hafa sundrað kærleika hinna heilögu saklausu og trúarjátningu Drottins vors með mögli sínu, með falskenningum sínum, með sundrun þeirra á kærleika limanna á líkama Guðs.