Translations:Archangel Uzziel and his twin flame/11/is
Þar sem áttundi geislinn ber slíkan styrk uppstigningarelda, verðið þið að stækka hjartaorkustöðina ykkar til þess að halda við áttunda geislanum á meðan þið eruð í efnsilíkamanum! Þið verðið að opna hjartaorkustöð Ameríku! Þið verðið að ná sambandi við bandarísku þjóðina með fræðslunni sem gerir henni kleift að vernda hjartað, sérstaklega gegn öllu ómstríðum hljómum vinsælla tónlistarforma sem eru svo mjög eyðileggjandi fyrir hjartsláttinn, þar sem sá hjartsláttur er endurómur hins kosmíska hjarta. Þið verðið að kenna íbúum þessarar þjóðar að slökkva á sjónvarpstækjunum sínum, að aðskilja sig frá yfirþyrmandi hávaða og áreitum gegn hinum efnislegu skilningarvitum sem er áfall fyrir hjartað og orku þess.