Translations:Holy Communion/15/is
Að taka þátt í samfélagi heilagra (í hvaða kristinni kirkju sem er) er meðtekning okkar á sonargjöf Guðs og skuldbinding okkar um að yfirgefa ekki lengur hús föðurins og sonarins. Í hvert sinn sem við fögnum líkama Drottins og blóði hans verðum við að fara frá altarinu og vitna um anda hans með orðum okkar og verkum. Í hvert sinn sem við meðtökum brauðið og vínið, og trúum því að það sé, með umbreytingu, líkami og blóð Krists, dreypum við á loga Krists-verundar okkar, skref fyrir skref, dropa fyrir dropa.