Translations:False hierarchy/12/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 10:59, 25 May 2025 by Hbraga (talk | contribs)

Sannleiksleitendur verða alltaf að hafa í huga að forvitni, stolt og löngun til að vekja athygli á sjálfum sér, auk ásækni í dularfull fyrirbæri, opna dyrnar fyrir sálrænni ágengni innri afla. Þegar eitt sinn hefur verið „skrúfað frá“ þeim er erfitt að skrúfa fyrir aftur eins og lærlingur galdramannsins fékk að kenna á. Aftur á móti er óbilandi hollusta við nærveru Guðs í öllu lífi, helgun við hið flekklausa hugtak og ítarleg, tiltæk þekking á lögmáli uppstignu meistaranna eru andleg varnarvígi sem veita ótakmarkaða vernd gegn öllu sem stæði gegn einstaklingsbundinni sjálfsfærni og fullkominni stjórn og endanlegri uppstigningu hans í ljósinu.