Translations:Mars/20/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 08:46, 16 June 2025 by Hbraga (talk | contribs)

Elsku vinir, ef eftirbátarnir á þroskabrautinni hafna niðurstígandi ljósinu eða neita að meðtaka það á nokkurn hátt eða brengla það með krafti hels og dauða eða velja að beina því frá sér og þar með ná sér niður á óvildarmönnum sínum og þjóna blóðhefndum sínum, þá munu þeir verða útilokaðir. Og þið munið sjá aðskilnað ljósvakasviðsins frá jarðsviðinu. Og þeir sem eru af ljósinu munu ganga inn í ljósvakalíkamann og aðskiljast hinum eins og umslag er aðskilið frá innihaldinu, eins og slíður er fjarlægt. Og ljósberarnir munu snúa aftur til bústaðar paradísar í ljósvakaáttundinni og gullöldin mun taka við. Og jarðarskelin sjálf mun því verða ein af þessum hrjóstrugu plánetum, því þetta er nákvæmlega það sem hefur gerst á Venus og á Mars.