Translations:K-17/12/is
Við höfum laus störf í röðum okkar fyrir þá sem vilja taka þátt, með því að nota Alsjáandi auga Guðs með hjálp Syklópeu, við að vekja athygli helgiveldisins á einstaklingum og aðstæðum, samtökum og atburðum sem samræmast ekki lögmálinu og eru ... ógn við framgang ljóssins á plánetunni. Þið vitið að Guð er alvitur. En alviska Guðs birtist í gegnum sjálfsvitund hans í manninum. Guð notar hendur ykkar og fætur. Hann notar einnig augu ykkar. Og því er það ekki óviðeigandi fyrir þá sem eru í efnislíkama að vekja athygli helgiveldisins á aðstæðum sem eru í uppsiglingu og á teikniborðunum sem þurfa á innsigli hins hvíta elds að halda — hinum ógegndræpa hringi.