Alheimsspegill

From TSL Encyclopedia
Revision as of 15:03, 1 December 2025 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "<blockquote>Lærdómurinn sem sálin lærir utan líkamans á meðan hún sefur glatast ekki heldur verða hluti af samsetningu undirmeðvitaðrar sjálfsvitundar sem kemur upp á yfirborðið nægilega mikið til að stinga í sálarminnið og hvetja það til afgerandi aðgerða.</blockquote>")
Other languages:

Í bókinni Unveiled Mysteries Afhjúpaðir leyndardómar lýsti Godfré Ray King „lifandi spegilsljósi“ í Royal Teton athvarfinu (í Grand Teton, Jackson Hole, Wyoming) — „alheimsskjár, þar sem lifandi myndir í öllum víddum gætu verið birtar, án takmarkana á því rými sem hægt væri að skoða.... Allt sem hafði eða gæti nokkurn tímann átt sér stað í allri eilífð gæti verið gert sýnilegt á þessum skjá, ef Leiðandi vitsmunir óskuðu þess.“[1]

Einnig er alheimsspegill í Táknhellinum, þar sem hann sést á austurvegg Kristalsklefans. Þegar lærisveinninn hefur náð ákveðnu stigi er hann leiddur af meistaranum fyrir alheimsspegilinn, sem hefur lykilinn að ljósvakalíkama hans og endurspeglar fyrri líf hans, þar á meðal orsök og afleiðingu allra hugsana, tilfinninga, orða og verka sem hann hefur nokkurn tímann birt. Alheimsspegillinn endurspeglar einnig upprunalegt forsnið guðlegrar ráðagerðar hans sem er mörkuð á ljósvakalíkamann þegar sálin fæðist í hjarta Guðs.

Með því að skoða fyrri líf sín getur lærisveinninn lært hvaða þátt í guðdómlegu ráðagerðinni hann hefur spilað úr. Hann getur séð hvaða aðstæður í heimsmynd hans þarf að leiðrétta og hvaða góða uppsafnaðan kraft hann hefur þróað sem hann getur nú notað til að sigrast á erfiðleikum fortíðar og nútíðar og þannig uppfyllt guðlegu ráðagerð sína í mjög náinni framtíð.

Það er mjög lífgandi, mjög raunveruleg upplifun að standa frammi fyrir þessum spegli. Maður verður að vera tilbúinn að horfa í gegnum blekkingar sínar, í gegnum hugaróra sína, í gegnum gervisjálfið sitt. Maður verður að geta viðurkennt blekkingarnar sem sjálfshyggjan (egóið) framleiðir stöðugt gegn sjálfu sér. Það er ekki hægt að fela neitt í návist Guðs.

Þessi upplifun getur einnig átt sér stað í Grand Teton, í Athvarfi El Morya í Darjeeling, eða í öðru athvarfi Stóra hvíta bræðralagsins.

Að skoða sig í alheimsspeglinum

Við fyrstu sýn lítur alheimsspegillinn út eins og venjulegt kvikmyndatjald. Meistarinn velur ákveðnar skrár teknar úr akasha-annálunum sem einnig eru geymdar í minni sálarinnar, og í alheimsspeglinum lifna þær við.

Þetta er handan þrívíddar – maður er kominn þangað! Hluti af fyrra lífi, eða fleiri en einu, líður fyrir framan manninn, en hann ert lifandi hluti af þessum sannsögla leik ljóss og myrkurs með gráum litbrigðum. Það er næstum of mikið til að takast á við. Maður verður sér strax meðvitaður, eins og í alvitandi heimi, um afleiðingar karma síns, jafnvel þegar maður endurupplifir tilfinningarnar, fyrirfram ákveðnar hugsanir og verkin sjálf.

Þetta gæti verið mjög sársaukafull reynsla, á meðan maður finnur fyrir því að æðri vitundin (hið Heilaga Krists-sjálf) stendur vörð og segir manni blíðlega en ákveðið að láta ekki undan ystu mörkum örvæntingar eða alsælu, heldur horfast í augu við framtíðina með von byggða á þeirri vísindalegu þekkingu að í sínum höndum, fyrir náð heilaga anda, býr mátturinn til að breyta. Gefnir eru nokkrir kaflar í hverri lotu og maður sér fljótlega visku lögmálsins sem krefst aðlögunar með því að beita fjólubláa loganum á þessi myndskeið og minningar uns jafnvægi er komið á aftur.

Reynsla í Darjeeling athvarfinu

Ástkæri El Morya veitir chela-nema sínum svipaða vígslu í Darjeeling. Hann lýsir þessari reynslu í Chela-neminn og andlegi vegurinn:

---

Það er kominn tími til að ganga inn í herbergið sem er hannað með bláum og gullnum mynstrum þar sem er skjár og sæti raðað í leikhússtíl. Til að skilja leið þína, þína persónulegu leið til hjálpræðis, verður þú að hafa sjónarhorn á fortíð þína og hvernig þú hefur skapað nútíðina - bæði á persónulegu og plánetulegu stigi. Komdu þá og við skulum sjá hvernig við munum, í töfrum logans, uppgötva áform sálarörlög þín.... Nú birtast atriði úr lífinu í fornöld Þrakíu á skjánum og við finnum okkur á markaðstorg gleymdrar borgar í landi sem nú er Tyrkland.[2]

--- Þannig þróast afar forvitnileg saga – atriði þar sem depurð fornrar karma rennur upp í hring í lífi áhorfenda, sem meistarinn opinberaði einnig virkni fjólubláa logans sem þeir sáu hreinsa færslurnar á skjánum rétt fyrir augum þeirra. Með svo djúpri innsýn í virkni alheimslögmálsins snúa nemendur Morya aftur til efnislegrar meðvitundar sinnar, staðráðnir í að „laga hlutina“ og þú gerir það líka.

Drottinn fyrsta geislans gefur fyrirheit:

Lærdómurinn sem sálin lærir utan líkamans á meðan hún sefur glatast ekki heldur verða hluti af samsetningu undirmeðvitaðrar sjálfsvitundar sem kemur upp á yfirborðið nægilega mikið til að stinga í sálarminnið og hvetja það til afgerandi aðgerða.

Indeed, the quickening of the outer mind to this inner soul experience, once it has returned to waking consciousness and the five senses, is accomplished adroitly by the Master M. through the associative technique, or the arrangement of uncanny circumstances that loose the soul memory, sometimes in a torrent of emotions, as major turning points in her evolution and karma are relived—and then relieved through the violet flame.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, MORYA: The Darjeeling Master Speaks to His Chelas on the Quest for the Holy Grail (1983), p. 351.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Cave of Symbols.”

Elizabeth Clare Prophet, 22. febrúar 1975.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lords of the Seven Rays, “Conclusion.”

  1. Sjá Godfré Ray King, Unveiled Mysteries (Afjúpaðir leyndardómar), 3. útgáfa (Chicago: Saint Germain Press, 1939), bls. 90–91.
  2. El Morya, Chela-neminn og vegurinn: Leiðarlyklar að sálarstjórn á vatnsberaöld, kafli 5.