Engill

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Angel and the translation is 100% complete.
Erkenglarnir þrír og Tóbías, Francesco Botticini (1470)

Guðleg vera, sendiboði, fyrirrennari; boðberi sendur af Guði til að flytja börnuum Guðs Orð hans. Þjónandi andar sem sendir eru til að annast erfingja Krists—til að hugga, vernda, leiðbeina, styrkja, kenna, gefa ráð og vara við. Sveit ljóssins í þjónustu hinna Krists-bornu (Christed Ones), sona og dætra Guðs, um allan algeim. ‘Engill’ Guðs-vitundarinnar—þáttur Sjálfs-vitundar hans; vera mótuð af Guði úr sinni eigin logandi Nærveru til að þjóna lífi hans í efnisforminu. "Og um englana segir hann: Hann sem gjörir engla sína að vindum og þjóna sína að eldslogum."[1]

Englasveit er á þróunarbraut sem er aðskilin þróun mannsins. Það kemur fram í logandi sjálfsveru þeirra og hreinleika hollustu þeirra við guðdóminn og við erkienglana og helgivöldin sem þeir þjóna. Virkni þeirra kemur fram í því að þeir einbeita sér að því að hraða og magna eiginleika Guðs í þágu sköpunar hans. Þeir þjóna þörfum mannkynsins með því að magna ljósið í áru þess, efla vonarneistann, trú og kærleika, heiður, heilindi, hugdirfsku, sannleika og frelsi, miskunn og réttlæti og sérhven þátt hins kristaltæra huga Guðs.

Þrír englar heimsækja Abraham, Ludovico Carracci (1610–1612)

Vegna blessunar sem ósýnileg nærvera þeirra veitir sagði höfundur Hebreabréfsins: „Gleymið ekki gestrisninni, því að vegna hennar hafa sumir hýst engla án þess að vita.“[2]—og benti svo á að englar taka sér bólfestu í holdinu og lifa og hrærast á meðal okkar sem hinir bestu vinir og hjálparhellur, jafnvel alveg ókunnugum.

Í myndhverfri merkingu eru englar rafeindir sem snúast í kringum návist sólarinnar sem er Guð — rafeindir sem hafa valið af meðfæddum vilja innra með sér að víkka vitund Guðs á sérhverju sviði verundarinnar. Englar eru rafeindir sem hafa verið ‘hlaðnar’ með ljósi/orku/vitund Hinnar miklu miðsólar sem ‘rafskaut’, þ.e. stoðir fyrir logandi návist Guðs. Þau virka sem ‘stiglækkandi spennubreytar’ hins ólýsandi ljóss svo að börn hans geti gert sér vonir um að hljóta þá dýrð sem koma skal inni í hinar myrku karmísku aðstæður þeirra á jörðinni.

Englar geta tekið á sig mannlega mynd, orðið eins konar „stafir“ og „keilur“ eða spíralar og vafningar samþjappaðrar orku sem hægt er að losa til eigin lækninga og til heilunar á jörðinni sem svar við kalli hinna Krists-bornu sem veita bókstaflega náðargjafir holds og blóðs Krists hvar og hvenær sem þörf er á. Til eru englar til lækninga, verndar, kærleika, huggunar og samúðar, englar sem hlúa að hringrás fæðinga og dauða, englar hins alsjáandi auga Guðs sem beita logandi sverði sannleikans sem kljúfa hið raunverulega frá því óraunverulega. Til eru tegundir og skipanir engla sem sinna ákveðinni þjónustu í helgivaldi algeimsins, svo sem serafar og tívar sem þjóna með náttúruöndum elds, lofts, vatns og jarðar.

Englavígslur

Drottinn hefur í óendanlegum kærleika sínum séð fyrir vígsluenglum, svo að mennirnir geti risið upp í stigröð helgivaldsins. Í gegnum hollustu við skaparann og óbilandi hollustu við sköpun hans í aldaraðir má gefa englum hina heilögu gjöf frjálss vilja og tækifæri til að ganga inn í gáttir fæðingarinnar. Þegar þeir hafa stigið niður í efnisformið á þennan hátt byrja englar að þróast í ríki Guðs, ganga í gegnum sömu eldraunirnar, vígslur og lúta karmískum lögmálum sem gilda um syni og dætur Guðs. Þegar þeir hafa uppfyllt allar þessar kröfur geta englarnir undirgengist helgisiði uppstigningarinnar og geta þá orðið hæfir til að gegna embætti erkiengils eða kven-erkiengils fyrir heimskerfi.

Sjá einnig

Erkiengill

Fallnir englar

Konungsríkin þrjú

Skrá yfir uppstigna meistara, algeimsverur og engla

Listi yfir sérhæfða engla

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path.

  1. Heb. 1:7.
  2. Heb. 13:2.