Bódhisattva

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Bodhisattva and the translation is 100% complete.
Other languages:

Sanskrítarorð sem þýðir bókstaflega mannvera sem er bódhi (eða uppljómaður). Maður sem mun verða uppljómaður eða sá sem beinir öllum kröftum sínum og afli að því að verða uppljómaður. Bodhisattva er sá sem á í vændum að verða uppljómaður Búddha en hefur afsalað sér alsælu nirvana og gefið heit um að bjarga öllum guðsbörnum á jörðinni. Uppstiginn meistari eða óuppstiginn meistari getur verið bódhisattva.

Í Mahayana stefnu búddhadóms er markmið vegferðarinnar að verða bódhisattva. Vegi bódhisattva er almennt skipt í tíu stig sem kallast bhúmi. Bódhisattva leitast við að þroskast frá einu stigi til annars uns hann öðlast uppljómun.

Geshe Wangyal skilgreinir bódhisattva sem

„Afsprengi sigurvegarans.“ Sá sem hefur heitið því að öðlast uppljómun með velferð allra lifandi vera í huga. Hugtakið bódhisattva vísar til þeirra sem eru á mörgum þroskastigum: frá þeim sem þrá uppljómun í fyrsta sinn til þeirra sem hafa raunverulega farið inn á Bódhisattva veginn. Hann þróast í gegnum tíu stig og nær hámarki í uppljómun, öðlast búddhadóm.[1]

Búddhiski heimspekingurinn og vitringurinn Nagarjuna skilgreindi í bók sinni sem skrifað var um aðra öld hvað Bódhisattva er:

Innsta eðli allra bódhisattva er stórt kærleiksríkt hjarta og njóta allar tilfinningaverur góðs af kærleika hans. Þess vegna festa ekki allir Bódhisattvar sig við sæluvímuna sem skapast af margvíslegum aðferðum til andlegrar kyrrðar og innri friðar, girnast ekki ávöxt verðskuldaðra verka sinna sem geta aukið eigin hamingju ... .

Með sínu stóra kærleiksríka hjarta líta þeir á þjáningar allra vera, sem eru margvíslega pyntaðar í Avici helvíti vegna synda sinna — helvíti sem hefur óendanlegar takmarkanir og þar sem endalausar hringrásir eymdar eiga sér stað vegna alls kyns karma [sem tilfinningaverur fremja]. Bódhisattvar fullir meðlíðunar og kærleika þrá að þjást sjálfir fyrir sakir þessara vesalings vera.

En þeir þekkja vel þann sannleika að allar þessar margvíslegu þjáningar sem valda margvíslegum eymdum eru í einum skilningi hugarburður og óraunverulegar en í öðrum skilningi eru þær ekki svo ... .

Til þess að frelsa tilfinningaverur frá eymd eru allir Bódhisattvar innblásnir af miklum andlegum krafti og láta óþverrann ganga yfir sig sem fylgir fæðingum og dauða. Þó þeir lúti sjálfviljugir lögmálum fæðingar og dauða eru hjörtu þeirra laus við syndir, bindingar og höft. Þeir eru líkir þessum flekklausu, óflekkuðu lótusblómum sem vaxa úr mýri en óhreinkast samt af henni.

Hin stóru samúðarfullu hjörtu þeirra, sem eru kjarninn í veru þeirra, vanrækja aldrei þjáðar verur [í vegferð sinni til uppljómunar].[2]

Til frekari upplýsingar

Elizabeth Clare Prophet, Maitreya on Initiation

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Elizabeth Clare Prophet, Maitreya on Initiation.

  1. Geshe Wangyal, þýð., The Door of Liberation (New York: Lotsawa, 1978), bls. 208.
  2. Daisetz Teitaro Suzuki, Outlines of Mahayana Buddhism (1907; endurútgáfa, New York: Schocken Books, 1963), bls. 292–94.