Orkustöð

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Chakra and the translation is 100% complete.
The seven chakras superimposed over a painting of Michelangelo's David
Orkustöðvarnar sjö

Orkustöð [Chakra á sanskrít sem stendur fyrir „hjól,“ „disk,“ „hring“] er hugtak sem notað er til að tákna ljósstöðvarnar sem eru rótfestar í ljósvakalíkamanum og stjórna orkuflæði til fjögurra lægri líkama mannsins.

Það eru til sjö meginorkustöðvar sem samsvara geislasviðunum sjö, fimm minni orkustöðvar sem samsvara leynigeislunum fimm en samtals eru 144 ljósstöðvar í líkama mannsins.

Virkni orkustöðvanna

Djwal Kúl útskýrir virkni orkustöðvanna:

Hver af orkustöðvunum hefur sérstaka virkni og við munum íhuga þessa starfsemi skref fyrir skref. Hver þessara hjóllaga hvirfla sem samanstanda af orkustöðvunum hefur, samkvæmt kenningum meistara Himalajafjalla, ákveðna tíðni sem markast af fjölda svokallaðra krónublaða. Þessi krónublöð ákvarða orkuflæði Guðs til mannsins og þau stjórna ákveðnum þáttum vitundar Guðs, almennt kallaðar dyggðir sem kunna að eflast í orkustöðvunum.

Orkustöðvarnar sem nú eru starfandi í verund mannsins eru rótfestar í lægri ljósvakalíkamanum og staðsetningar þeirra eru í samræmi við líffærin í efnislíkamanum sem taka við orkuflæði frá æðri líkömum sem nauðsynleg eru til að hann geti starfað. Þessar orkustöðvar eru staðsettar neðst á hryggnum, yfir milta, yfir nafla, yfir hjarta, í hálsi, á enni og við hvirfil.

Staðsetning þessara orkustöðva var breytt eftir fall mannsins til að samsvara taugastöðvum í líkamanum. Hún er hins vegar til staðar í æðri ljósvakalíkamanum í línu við kraftsvið geislanna sjö; þar sem hinir sjö elóhímar dreifa orkutíðni sinni til fjögurra lægri líkama mannsins. Þeir eru einnig þekktir sem sjö andar Guðs.[1]

Helstu orkustöðvarnar sjö, geislar þeirra, sanskrítarnöfn og litir eru sem hér segir:

Geisli Orkustöð Sanskrítarnafn Litur Krónublöð
Fyrsti geisli háls Vishúddha blár 16
Annar geisli hvirfill Sahasrāra gulur 972
Þriðji geisli hjarta Anāhata rauðgulur 12
Fjórði geisli mænurót Mūlādhāra hvítur 4
Fimmti geisli þriðja augað Ajñā grænn 96
Sjötti geisli sólar plexus Manipūra rauðblár og gylltur 10
Sjöundi geisli sálarsetrið Svādhishthāna fjólublár 6
Áttundi geislinn Leynihólf hjartans Ananda-Kanda sambland rauðguls og gyllts, ferskjulitur 8

Hendur, fætur og hóstakirtill standa fyrir orkustöðvar leynigeislanna fimm chakras.

Tónlist og orkustöðvarnar

Orkustöð Tilsvarandi hljómfall Hljóðfæri
Bassi 4/4 trommur
Sálarsetrið 6/8 tréblásturshljóðfæri
Sólar plexus 5/4 orgel
Hjarta 12/8 (að utan)
3/4 (að innan)
harpa
Háls málmblásturshljóðfæri
Þriðja augað 2/4 píanó
Hvirfillinn strengjahljóðfæri
Leynihólf hjartans sembal
Orkustöðvarnar sjö 7/4
Hringir innan orsakalíkamans
í kringum hveja orkustöð sem á eftir kemur
uns sjálfstjórn er náð
12/4

Svæðisbundnar orkustöðvar

Aðalgrein: Svæðisbundnar orkustöðvar

Ríki, þjóðir og heimsálfur hafa einnig svæðisbundnar orkustöðvar þar sem orka geislanna sjö er jarðtengd og leyst úr læðingi.

Til frekari upplýsinga

Elizabeth Clare Prophet and Patricia R. Spadaro, Your Seven Energy Centers: A Holistic Approach to Physical, Emotional and Spiritual Vitality.

Kuthumi and Djwal Kul, The Human Aura: How to Activate and Energize Your Aura and Chakras.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lost Teachings on Your Higher Self.

Elizabeth Clare Prophet, Chakra Meditations and the Science of the Spoken Word (hljóðsnælda).

Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain’s Heart Meditations I & II (hljóðsnælda).

Frekari upplýsingar um tónlist og orkustöðvarnar

Elizabeth Clare Prophet, The Power of Music to Create or Destroy (DVD).

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Elizabeth Clare Prophet, 7. október, 1977.

Elizabeth Clare Prophet, 13. desember, 1973.

  1. Kuthumi and Djwal Kul, The Human Aura: How to Activate and Energize Your Aura and Chakras, 2. bók, 3. kafli.