Ametýst (gimsteinn)
Ametýst [gríska, améthystos, „ódrukkinn“] er gimsteinn alkemistans og spámannsins; gimsteinn sem geymir fjólubláa logann (sjöunda geislans) og laðar að sér gjafir heilags anda.
Fornmenn trúðu því að ametýst kæfi niður allar tegundir ástríðu, matarlystar og langana líkamans, varðveitti hreinlífi, stjórnaði tilfinningum, veitti reisn, kærleika, hluttekningu og von. Hebreska trúin er sú að hann geti kallað fram drauma og sýnir. Edgar Cayce segir að hann geri líkamann næmari fyrir andlegum áhrifum, hærri orkutitringi og lækningarkrafti. Hann er góður til að bera fyrir hugleiðslu, til að auka hæfni við áreynslu og til að koma í veg fyrir reiði. Hann er gimsteinn biskupshringsins í kaþólsku og biskupakirkjunni, tengdur konungdómi, trúarlegum athöfnum, helgisiðum í kirkju og ríki.
Maður ætti alltaf að hafa ametýst á sér og ametýstkristall á skrifborðinu sínu til að leysa úr hverjum vanda, skapa sátt, gleði, sköpunargáfu og frelsi. Þú getur séð ametýstinn á skrifborðinu þínu fyrir þér sem tengipunkt tölunnar átta þar sem allar vangaveltur og samræður við aðra sem verða á vegi þínum geti gengið snurðulaust og umbreyst.
Saint Germain notar ametýst. Hann gæti gert ametýst sem þú berð logamagnaðan.
-
Marghliða ametýst
-
Ametýst innskot
-
Ametýst frá Suður-Afríku
-
Ametýst frá Úrúgvæ
Heimildir
Elizabeth Clare Prophet, 18. október 1987.