Aríes og Þór

Sem stjórnendur frumþáttar (höfuðskepnu) loftsins þjóna þessir tvíburalogar með hinum tólf sólarhelgivöldum hrútsins, nautsins og tvíburanna til að kenna mannkyninu að ná valdi á huglíkamanum og helgivöldum tvíburanna, vogarinnar og vatnsberans til að ná valdi á höfuðskepnu loftsins.
Ástkær Aríes (Hrútur) og Þór stýra uppljómunarvirkninni sem kemur frá huga Krists, innblæstri og blæstri, innöndun og útöndun heilags anda, hreinsunar loftþáttarins, andrúmsloftsins og hugræna beltisins.
Loftandarnir (loftdísirnar) eru náttúruvættir og frumþættir loftsins sem aðstoða Aríes og Þór við að stjórna vindunum fjórum, andrúmsloftinu og skýjafarinu. Þar sem allar náttúruvættir eru í raun eftirhermur, þá eru loftandarnir engin undantekning og móta í skýjunum þær myndir sem þær skynja á efnislegum, geðrænum, hugrænum og ljósvakasviðum jarðarinnar. Þegar við sjáum myndir af englum í skýjunum vitum við að þeir eru í nánd því loftdísirnar hafa séð þá og mótað skýin eftir mynd þeirra og líkingu. Á sama hátt eru óskapnaðir og forynjur, sem gnæfa sem dökk ský, eftirlíkingar loftandanna af óeiningu mannkynsins sem geisar í geðsviðshafinu. Það æsir upp náttúruvættaríkið og kemur í veg fyrir að það starfi samkvæmt samstillingarlögmálinu. Þannig má lesa tákn tímans í athöfnum náttúrvættanna sem skrá trúfastlega fyrirmæli engla og manna sem kemur fram á yfirbragði náttúrunnar.
Mark L. Prophet hefur lýst loftdísunum á þennan hátt:
Þær eru fallegar. Þetta eru þær tegundir álfa sem eru með sítt gullið hár og frekar mjóa líkama með serafísku sniði og þær eru mjög lögulega vaxnar. Þær svífa um loftið og sveigja allan líkama sinn í mismunandi form. Stundum er líkaminn sveigður með fæturna aftur, eins og flík og handleggirnir eru í glæsilegum ballerínustöðum.
Þær hafa fallega ásjónu eins og fallegustu konur sem hægt er að ímynda sér, nema hvað andlit þeirra endurspegla hreinleikann. Það er ekkert holdlegt eða harðneskjulegt í andlitum þeirra. Einu undantekningarnar eru að ákveðnir loftandar taka á sig mannlegri mynd og mennsk viðhorf þegar þær verða á vegi þeirra.
Þegar loftandarnir tileinka sér slæleg mennsk viðhorf og sundurlyndishneigðir, munu þeir fýsa að losa sig við þennan ófögnuð með því að beita fyrir sér miðflóttaaflinu. Þeir munu varpa frá sér mennskri orkutíðni haturs og reiði með því að hefja snúningshreyfingu í loftinu. Þeir geta snúist svo hratt að þeir geta myndað vindhraða upp á 240 km hraða á klukkustund. Það er krafturinn á bak við fellibylinn.[1]
Guðspekingurinn E. L. Gardner gefur líflega lýsingu á náttúruvættunum, sérstaklega loftöndum. Hann segir:
Náttúrulegi „líkaminn“ sem náttúruvættirnar bera virðist vera tifandi ljóskúla. Kraftstraumar sem geisla frá miðju þeirra byggja upp fljótandi vaxtarlag, „vængi“ geislandi orku og filmulaga form sem taka á sig óljósa mannsmynd. Í þróuðum formum eru höfuð og augu alltaf greinilega aðgreind; oft er öll líkamsgerðin til staðar, með „ljóamiðstöð“ sem logar við hjartað eða höfuðið.
Loftandi af þessari gerð gæti íklæðst fallegri karlkyns- eða kvenkynsmynd við störf og leik ... meðal plantna, dýra eða jafnvel manna, en náttúruleg líkamsgerð hans gefur tilefni til ... gljáandi, breytileg, tifandi ... en ekki takmörkuð við fasta eða ákveðna lögun.[2]
Loftandarnir bera „prana (lífsorku) heilags anda sem er sjálfur lífsandinn í sálinni.“ Þær standa „með drottni Maha Chohan þegar hann blæs lífsanda í nýfædda sálina og þegar þrígreindur logi tendrast á ný á altari hjartans.“ Þeir eru „hinir miklu straummiðlarar heilags anda frá himni til jarðar“ og þeir eru „risastórir straumbreytar, leiðarar hugstreymis Guðs til mannshugans.“[3] Loftandarnir þvo og hreinsa andrúmsloftið og loftræsta hugann og hjartað og hverja lífsfrumu.
Það er mikilvægt fyrir mannkynið að færa loftöndunum innilegar þakkir í bængjörð og kalla eftir vernd þeirra.
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, “Aries and Thor.”
- ↑ Mark Prophet, “An Introduction to the Elementals” („Kynning á náttúruvættum“), 12. október 1964.
- ↑ E. L. Gardner, intro. to Geoffrey Hodson, Fairies at Work and at Play (inngangur að ..., Álfar við störf og leik) (London: The Theosophical Publishing House LTD, 1976), bls. 21. Fyrst gefin út árið 1925.
- ↑ Aries and Thor, “The Servants of God and Man in the Air Element” („Þjónar Guðs og mannsins í frumþætti loftsins“), Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 16, 20. apríl 1980.